Tökum ekki skref til fortíðar Hrönn Svansdóttir, Tótla I. Sæmundsdóttir, Bjarni Gíslason, Ingibjörg Elín Halldórsdóttir, Sigríður Schram, Ragnar Schram, Birna Þórarinsdóttir og Stella Samúelsdóttir skrifa 7. maí 2026 08:03 Í áratugi hefur markmið íslenskra stjórnvalda verið að auka framlög til þróunarsamvinnu. Hluti af því hefur verið að nálgast sem mest langtímamarkmið Sameinuðu þjóðanna um að framlag ríkja til málaflokksins nemi um 0,7% af vergum þjóðartekjum. Ísland hefur lengi verið eftirbátur þeirra ríkja sem við berum okkur gjarnan saman við í þessum efnum. Því fögnuðu frjáls félagasamtök þegar Alþingi samþykkti einróma nýja stefnu í lok árs 2023, um að hækka framlagið úr 0,35% árið 2024 upp í 0,46% yfir fjögurra ára tímabil. Misræmi hefur verið á milli markmiða þróunarsamvinnustefnu og fjármálaáætlunar frá því að þróunarsamvinnustefna var fyrst samþykkt, eins og sést glöggt á þessari mynd: Það eru okkur sem störfum við alþjóðlega þróunarsamvinnu mikil vonbrigði að sjá að í þingsályktunartillögu um fjármálaáætlun 2027-2031, skuli einungis vera gert ráð fyrir því að framlög til málaflokksins nemi um 0,30% af vergum þjóðartekjum á tímabili áætlunarinnar. Samþykktri stefnu hefur í raun aldrei verið fylgt og nú skal vikið enn frekar frá henni þegar lagt er til að á lokaári stefnunnar verði framlög til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu aðeins 0,30% í stað 0,46% sem Alþingi samþykkti fyrir árið 2028. Þetta veldur okkur þungum áhyggjum. Fjármálaáætlun styður ekki við markmið eða framkvæmd gildandi þróunarsamvinnustefnu sem Alþingi hefur sjálft sett. Skert framlög til þróunarsamvinnu munu hafa bein áhrif á markmið Íslands um útrýmingu fátæktar, virðingu fyrir mannréttindum og bætt lífsskilyrði í fátækari ríkjum heims. Þau munu draga úr tækifærum til valdeflingar kvenna, minnka aðgengi að grunnheilbrigðisþjónustu, skerða tækifæri til þess að bæta aðlögunarhæfni samfélaga í Ijósi loftslagsbreytinga og koma í veg fyrir styrkingu félagslegra og borgaralegra innviða, svo nokkur dæmi séu nefnd. Nú þegar eru blikur á lofti, vegna þess að hátekjuríki um allan heim hafa dregið verulega úr fjármögnun til þróunarsamvinnu. Það er ekki góður bragur á því að draga nú úr framlögunum eftir að ákvörðun hefur verið tekin um að hækka þau og og skýr áætlun komin um að nálgast markmið Sameinuðu þjóðanna um framlög til betri heims. Ísland er eitt ríkasta, hamingjusamasta og friðsælasta land í heimi samkvæmt alþjóðlegum mælikvörðum og við ættum að fara fram með góðu fordæmi í þróunarsamvinnu í stað þess að taka skref aftur á bak. Því hvetjum við Alþingi til að samræma fjármálaáætlunina þeirri stefnu í þróunarsamvinnu sem hefur þegar verið samþykkt, í stað þess að takast á um brot úr prósenti af þjóðartekjum sem hægt er að verja til að bæta lífsgæði og velferð þeirra sem höllustum fæti standa í heiminum. Hrönn Svansdóttir, framkvæmdastjóri ABC barnahjálpar Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla - Save the Children á Íslandi Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar Ingibjörg Elín Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi Sigríður Schram, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra kristniboðsfélaga Ragnar Schram, framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpa Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birna Þórarinsdóttir Stella Samúelsdóttir Tótla I. Sæmundsdóttir Þróunarsamvinna Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga Skoðun Skoðun Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar