Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 5. maí 2026 11:20 Gunnar Gíslason gefst ekki upp í atvinnuleitinni. Karlmaður á sextugsaldri með áratugareynslu, MBA-gráðu og víðtæka stjórnunarreynslu fær ekki vinnu þrátt fyrir að hafa sótt um tæplega fimmtíu störf. Hann spyr sig hvort aldurinn sé orðinn að ósýnilegum þröskuldi í ráðningum og segist vilja vekja athygli á stöðunni á vinnumarkaði frekar en sér sjálfum.
Þetta kemur fram í aðsendri grein Gunnars Gíslasonar á Vísi sem ber heitið: „Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum - en fæ ekki tækifærið.“ Þar segist Gunnar velta fyrir sér stöðunni á vinnumarkaði í dag og sérstaklega þá út frá sinni eigin reynslu, hann sé ekki að leita að vorkunn, heldur einungis að vekja upp vangaveltur. Gunnar hefur leitað sér að vinnu í eitt og hálft ár, síðan í janúar 2025 þegar honum var sagt upp störfum sem framkvæmdastjóri Norðanfisks á Akranesi. „Maður er er í fínu formi, góður andlega og getur unnið tíu ár í viðbót,“ segir Gunnar í samtali við Vísi. Með áratuga reynslu „Þegar einstaklingur með áratuga reynslu og góðan árangur í fyrrverandi störfum, viðeigandi menntun fyrir tiltekin störf sem verið er að sækja um, en fær ekki tækifæri til að sýna hvað í honum býr, er það aldurinn sem er orðinn stærri þáttur í ráðningarferlinu? Jafnvel þótt enginn þori að nefna það.“ Gunnar bendir á að reynsla sé ekki veikleiki. Hún feli í sér dýpri skilning, betri yfirsýn og getu til að takast á við flóknar aðstæður. Hann segir að slík hæfni ætti að sýna verðmæti umsækjandans og ekki vera vanmetin eða teljast sem synd ef hún fái að njóta sín. Reynslan virðist hins vegar ekki vega jafn þungt og áður. „Ég hef unnið alla mína starfsævi af heilindum, metnaði og ábyrgð. Ég er 57 ára, með MBA-gráðu, PMD-stjórnendanám og yfir tuttugu ára reynslu úr fjármálageiranum. Ég hef leitt stór verkefni, stýrt fyrirtækjum og tekið þátt í að byggja upp rekstur sem skilaði mælanlegum árangri.“ Fengið boð í þrjú viðtöl Gunnar segir í greininni að starfsferill hans hafi verið fjölbreyttur. Hann hafi starfað í fjármálageiranum í um tuttugu ár, komið að rekstri, stefnumótun og umbótaverkefnum. Síðar hafi hann tekið við sem framkvæmdastjóri sjávarútvegsfyrirtækis með yfir hundrað starfsmenn og starfsemi á þremur stöðum. Að því loknu hafi hann stýrt matvælafyrirtæki þar sem veltan hafi aukist frá tveimur milljörðum í 2,6 milljarða á tveimur árum. EBITDA úr sjötíu milljónum í 215 milljónir. Sá árangur hafi byggt á markvissri stjórn, skýrri stefnu og góðri teymisvinnu. „Þrátt fyrir þessa viðtæku reynslu hafa u.þ.b. 50 starfsumsóknir ekki skilað neinu hingað til, fyrir utan þrjú viðtöl sem leiddu ekki til ráðningar. Ég hef sótt um störf sem skrifstofustjóri, viðskiptastjóri, framkvæmdastjóri og rekstrarstjóri, til að nefna nokkur dæmi. Í þessi störf hef ég bæði menntunina og reynsluna, en fæ ekki tækifærið.“ Gunnar tekur fram að hann sé tilbúinn að leggja sitt af mörkum. Hann hafi vilja, getu og mikla reynslu af því að skapa verðmæti og leiða fólk. Það eina sem vanti sé að fá tækifæri til að sýna hvað í honum býr. „Von mín með þessari grein er að vekja umræðu, ekki um mig sem einstakling, heldur um hvernig við metum hæfni á vinnumarkaði. Ef aldur er orðinn ósýnilegur þröskuldur í ráðningum er mikilvægt að við horfumst í augu við það. Vinnumarkaðurinn þarf bæði orku og reynslu. Spurningin er hvort við séum að nýta hvort tveggja.“ Sinnti sömu stöðu í fimmtán ár en ekkert viðtal „Þetta er barátta,“ segir Gunnar. Hann segir vandann helst vera sá að þegar hann sendi inn umsókn fái hann aldrei að eiga í samskiptum við viðkomandi. „Maður sækir um með góða menntun, reynslu og góð meðmæli en þú færð aldrei að setjast niður og tala við aðilann. Ég sótti um í Íslandsbanka um daginn, viðskiptastjórastöðu, sem ég sinnti í fimmtán ár í Arion banka, en var ekki einu sinni boðinn í viðtal. Ég er með tengsl í geiranum og það er ekki einu sinni talað við mig, það finnst mér svo skrítið,“ segir Gunnar. „Þess vegna er ég að velta þessu upp, er það aldurinn? Ég er farinn að taka hann út af ferilskránni, en það skiptir engu máli, fólk gúgglar þetta bara. Ég segi bara: Nýtið þekkinguna hjá þessu fólki.“ Hann segist líka velta fyrir sér hvort vinnuveitendur haldi að hann sé að sækja um störfin sem stökkpall vegna hans miklu reynslu. Hvort þau haldi að hann myndi ekki dvelja lengi við. „Því reynsla mín er væntanlega meiri en margra annarra, en ég væri ekki að sækja um nema ég hefði áhuga á því. Er ekki fínt að fá mann með reynslu í starfið? Mér finnst eins og fyrirtækin séu að taka ákvörðun fyrir mann: Þú ert of góður í þetta starf.“
Vinnumarkaður Atvinnurekendur Jafnréttismál Mest lesið Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Bein útsending: Útför Steins Ármanns Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Erlent Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Innlent Fleiri fréttir „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Bein útsending: Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Sjá meira