Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason skrifar 5. maí 2026 11:20 Persónuleg reynsla af atvinnuleit og spurningunni um aldur á íslenskum vinnumarkaði. Ég velti fyrir mér stöðunni á atvinnumarkaði í dag og þá sérstaklega út frá minni eigin reynslu. Áður en ég byrja vil ég taka fram að ég er ekki að leita að vorkunn, einungis að vekja upp vangaveltur. Þegar einstaklingur með áratuga reynslu og góðan árangur í fyrrverandi störfum, viðeigandi menntun fyrir tiltekin störf sem verið er að sækja um, en fær ekki tækifæri til að sýna hvað í honum býr, er það aldurinn sem er orðinn stærri þáttur í ráðningarferlinu? Jafnvel þótt enginn þori að nefna það. Reynsla er ekki veikleiki. Hún felur í sér dýpri skilning, betri yfirsýn og getu til að takast á við flóknar aðstæður. Slík hæfni ætti að sýna verðmæti umsækjandans en ekki vanmetin og synd ef hún fær ekki að njóta sín. En reynslan virðist ekki vega jafn þungt og áður.Ég hef unnið alla mína starfsævi af heilindum, metnaði og ábyrgð. Ég er 57 ára, með MBA-gráðu, PMD-stjórnendanám og yfir tuttugu ára reynslu úr fjármálageiranum. Ég hef leitt stór verkefni, stýrt fyrirtækjum og tekið þátt í að byggja upp rekstur sem skilaði mælanlegum árangri. Starfsferill minn hefur verið fjölbreyttur. Ég starfaði í fjármálageiranum í um 20 ár og kom að rekstri, stefnumótun og umbótaverkefnum. Síðar tók ég við sem framkvæmdastjóri sjávarútvegsfyrirtækis með yfir 100 starfsmenn og starfsemi á þremur stöðum. Að því loknu stýrði ég matvælafyrirtæki þar sem veltan jókst úr 2 milljörðum í 2,6 milljarða á tveimur árum og EBITDA úr 70 milljónum í 215 milljónir. Þessi árangur byggðist á markvissri stjórn, skýrri stefnu og góðri teymisvinnu.Þrátt fyrir þessa viðtæku reynslu hafa u.þ.b. 50 starfsumsóknir ekki skilað neinu hingað til, fyrir utan þrjú viðtöl sem leiddu ekki til ráðningar. Ég hef sótt um störf sem skrifstofustjóri, viðskiptastjóri, framkvæmdastjóri og rekstrarstjóri, til að nefna nokkur dæmi. Í þessi störf hef ég bæði menntunina og reynsluna, en fæ ekki tækifærið.Ég er tilbúinn að leggja mitt af mörkum. Ég hef vilja, getu og mikla reynslu af því að skapa verðmæti og leiða fólk. Það eina sem vantar er að fá tækifæri til að sýna hvað í mér býr.Von mín með þessari grein er að vekja umræðu, ekki um mig sem einstakling, heldur um hvernig við metum hæfni á vinnumarkaði. Ef aldur er orðinn ósýnilegur þröskuldur í ráðningum er mikilvægt að við horfumst í augu við það.Vinnumarkaðurinn þarf bæði orku og reynslu. Spurningin er hvort við séum að nýta hvort tveggja. Höfundur er með MBA-gráðu og víðtæka stjórnunarreynslu úr fjármála- og rekstrargeiranum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vinnumarkaður Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar