Viðskipti innlent

Kaupa CCP aftur frá Kóreu

Samúel Karl Ólason skrifar
Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP.
Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP. CCP

Stjórnendur íslenska fyrirtækisins CCP hafa gert samkomulag við forsvarsmenn móðurfélags þess frá Suður-Kóreu, um að kaupa fyrirtækið aftur, sex árum eftir að það var selt til Pearl Abyss. Kaupvirðið er sagt vera fimmtán milljarðar króna en fyrirtækið var á sínum tíma selt fyrir 29 milljarða.

Í frétt Viðskiptablaðsins segir að gera megi ráð fyrir að Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri og stofnandi CCP, leiði kaupin.

Pearl Abyss keypti CCP fyrir sex árum síðan í samkomulagi sem hefði getað leitt til kaupa upp á 46 milljarða króna. Endanlegt kaupverð var þó um 29 milljarðar þar sem CCP stóðst ekki ákveðin afkomuskilyrði.

Sjá einnig: Kóreskur leikjaframleiðandi kaupir CCP á 46 milljarða króna

Síðan þá hefur CCP verið rekið með tapi og vildu forsvarsmenn PA létta á „fjárhagslegri byrði“, eins og fram kemur í frétt kóreska miðilsins Inven Global, sem birt var þann 30. apríl.

Eftir nánari skoðun var ákveðið að selja CCP til núverandi stjórnenda félagsins fyrir 120 milljónir dala, sem samsvarar um fimmtán milljörðum króna.

CCP er hvað þekktast fyrir leikinn EVE Online en fyrirtækið hefur í gegnum árin gefið út nokkra aðra leiki sem flestir tengjast söguheimi EVE.

Sjá einnig: Frá Seðlabankanum í sýndarheima CCP

Pearl Abyss gaf nýverið út leikinn Crimson Desert, sem hefur slegið í gegn víða um heim. Hann hefur selst í meira en fimm milljónum eintaka, meira en nokkur annar leikur frá Suður-Kóreu. Það og sala CCP mun hafa bætt stöðu fyrirtækisins til muna, samkvæmt áðurnefndri tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×