Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Freyja Þórisdóttir skrifar 1. maí 2026 16:18 Skilgreiningin á blásturshljóðfæri er „hljóðfæri sem blásið er í gegnum til að mynda hljóð“. Meðal vinsælla blásturshljóðfæra eru básúna, trompet og saxófónn en annað vanmetið blásturshljóðfæri er okkarínan. Myndina prýðir Lúðrasveit Verkalýðsins. Vísir/Viktor Freyr Verkalýðsdagurinn er venju samkvæmt haldinn hátíðlegur víða um land í dag, 1. maí. Það var meðal annars haldinn baráttufundur verkalýðsfélaga á Ingólfstorgi, kröfuganga niður Skólavörðustíginn og verkalýðskaffi í Iðnó. Á Selfossi var dagskráin engu síðri.
Blíðviðri lék við landsmenn á suðvesturhorninu og sú gula lét sig ekki vanta en myndaveislu frá Reykjavík og Selfossi má sjá hér að neðan: Sólveig Anna Jónsdóttir, núverandi formaður Eflingar, „fótobombaði“ þessa hressu kröfugöngukrakka á leið sinni niður Skólavörðustíginn.Vísir/Viktor Freyr Lögreglan var sýnileg í miðbænum í dag, sumir á skriðdrekum en aðrir á tveimur jafnfljótum.Vísir/Viktor Freyr Felix Bergson lét sig ekki vanta á útifund sem haldinn var á Ingólfstorg í dag. Vísir/Viktor Freyr Fjöldinn allur af mismunandi fánum blakti í blíðunni en það viðraði vel í tilefni verkalýðsdagsins.Vísir/Viktor Freyr Það voru engin aldurstakmörk sett á dagskrá Verkalýðsdagsins í Reykjavík, allir velkomnir.Vísir/Viktor Freyr Halla Gunnarsdóttir tók við embætti formanns VR í desember árið 2024 en hún ávarpaði lýðinn sem safnast hafði saman á Ingólfstorgi í dag. Vísir/Viktor Freyr Eflingar fáninn er ýmist hvítur með þremur rauðappelsínugulum línum eða rauðappelsínugulur með þremur hvítum línum. Ef Efling væri með fótboltalið er spurning hvort heima- eða útibúningurinn myndi skarta sömu litum?Vísir/Viktor Freyr Í Reykjavík voru menn á mótorhjólum en á Selfossi mátti sjá knöpum bregða fyrir á íslenskum fákum.Vísir/Viktor Freyr Leikhópurinn Lotta hefur brugðið sér í allra kvikinda líki og gerðu það með glæsibrag á Selfossi í dag.Vísir/Viktor Freyr Gestir á Hótel Selfossi voru þess heiðurs aðnjótandi að fylgjast með þeim Rannveigu Helgu Kjartansdóttur og Erni Hreinssyni frá Tónsmiðju Suðurlands flytja tónlistaratriði.Vísir/Viktor Freyr Var verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur í þínu bæjarfélagi? Sendu okkur fréttaskot eða myndir hér.
Verkalýðsdagurinn Reykjavík Ölfus Samkvæmislífið Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Fleiri fréttir Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Sjá meira