1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar 1. maí 2026 12:30 Þekking er dýrmætasta auðlind hverrar þjóðar. Menntun er fjárfesting sem á að skila sér í aukinni framleiðni, verðmætasköpun og bættum lífskjörum. Til að þessi tengsl haldist þarf vinnumarkað sem byggir á sanngjörnum leikreglum. Í þeim leikreglum gegnir jafnlaunareglan lykilhlutverki. Henni hefur verið ætlað að tryggja réttlæti og sanngirni í launasetningu. Önnur mikilvæg stoð í því tilliti er gagnsæi í launasetningu. Til að tryggja að jafnlaunareglan virki og nægilegt gagnsæi ríki um að henni sé fylgt, hefur jafnlaunavottun verið innleidd. Í vetur hefur verið unnið að breytingum á ákvæðum laga um jafnlaunavottun, sem áhöld eru um hvort séu til bóta að öllu leyti. Á baráttudegi launafólks, 1. maí, er rétt að staldra við og spyrja: Munu breytingarnar tryggja að menntun háskólafólks, ekki síst stétta þar sem konur eru í miklum meirihluta. sé metin til launa af sanngirni og gegnsæi og að jafnlaunareglunni verði framfylgt? Nýtt kerfi í deiglunni Frumvarp það, sem nú er til meðferðar á Alþingi, breytir lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Markmið þeirra laga er að koma í veg fyrir mismunun á grundvelli kyns og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kynjanna, m.a. á vinnumarkaði, með því að vinna gegn launamisrétti og annarri mismunun á grundvelli kyns. Áformuð breyting er veigamikil; núverandi fyrirkomulag jafnlaunavottunar og jafnlaunastaðfestingar verður lagt af og í staðinn kemur reglubundin skýrslugjöf til Jafnréttisstofu. Fyrirtæki og stofnanir með 50 eða fleiri starfsmenn munu þurfa að skila inn gögnum um starfaflokkun og launagreiningu á þriggja ára fresti. Hlustað á gagnrýni – að hluta Það ber að fagna því að tekið hefur verið tillit til veigamikilla athugasemda BHM frá því að málið var fyrst kynnt í samráðsgátt. Við vöruðum við því að fyrirhuguð viðmið um starfaflokkun væru of óljós, sem gæti viðhaldið kerfisbundnu vanmati á störfum háskólafólks, ekki síst í kvennastéttum. Í endanlegu frumvarpi er kveðið á um fjögur hlutlæg meginviðmið við mat á störfum: ábyrgð, álag, hæfni og vinnuaðstæður. Þetta er í samræmi við alþjóðlegar kröfur og er mikilvægt skref í átt að því að tryggja að sérfræðiþekking og menntun séu virt í launasetningu starfsfólks. Sömuleiðis er jákvætt að skýrslugjöfin verði samræmd þvert á vinnumarkaðinn, sem auðveldar eftirlit og samanburð. Þegar eftirlitið hverfur af stórum hluta markaðarins Hins vegar standa eftir alvarlegir annmarkar sem við í BHM getum ekki látið óátalda. Má þar nefna hækkun viðmiðunarmarka úr 25 starfsmönnum í 50. Með þessu er verulegur hluti íslensks vinnumarkaðar skilinn eftir í eftirlitslausu rými. Það er einmitt á smærri vinnustöðum þar sem hættan á huglægum og ógegnsæjum launaákvörðunum er oft mest. Hvernig á að framkvæma jafnlaunaregluna á gagnsæjan og markvissan hátt þegar þúsundir starfsmanna falla utan hins reglubundna aðhalds? Meginreglan um jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf skilar sér einungis ef lagalegar kröfur eru skýrar og eftirlitið með framkvæmdinni er virkt. Gagnsæi sem nær ekki til launafólks Frumvarpið gerir ráð fyrir að niðurstöður launagreininga séu kynntar starfsfólki og gerðar aðgengilegar. Það er mikilvægt skref. En gagnsæi sem takmarkast við niðurstöður án skýrra upplýsinga um þær forsendur sem liggja að baki launaákvörðunum nær ekki tilgangi sínum. Til að launafólk geti metið hvort jafnlaunareglunni sé fylgt þarf það ekki einungis að sjá hversu mikill launamunur er, heldur einnig af hverju hann er til staðar. Það krefst aðgengis að þeim hlutlægu og kynhlutlausu viðmiðum sem notuð eru við starfaflokkun, mat á störfum og ákvörðun einstaklingsbundinna launa. Ef upplýsingagjöfin takmarkast við samanteknar, jafnvel ópersónugreinanlegar tölur, án nægilegs samhengis, er hætta á að gagnsæið verði yfirborðskennt. Þá verður erfitt fyrir starfsfólk og fulltrúa þess að sannreyna hvort mismunur á launum byggist á málefnalegum sjónarmiðum eða ekki. Samráð er forsenda trausts Loks þarf að nefna mikilvægi samráðs. Á íslenskum vinnumarkaði er samráð forsenda trausts. Þegar stjórnvöld velja að hunsa rökstuddar kröfur heildarsamtaka launafólks um grundvallaratriði á borð við stærðarmörk vinnustaða og gagnsæi launasetningar í þessu tilfelli, veikist ekki aðeins lagasetningin sjálf heldur einnig sá samfélagssáttmáli sem við byggjum á við að þróa heilbrigðan vinnumarkað. Framhald baráttunnar Jafnrétti er hvorki formsatriði né valkvætt verkefni; það er sjálf forsenda réttláts samfélags. Baráttudagur launafólks minnir okkur á að réttindi okkar eru ekki sjálfgefin. Fyrir þeim hefur verið barist áratugum saman í krafti samstöðu um réttlát kjör. Til að viðhalda þeim er nauðsynlegt að fylgja þeim eftir af árvekni og einurð. Gleðilegan 1. maí. Höfundur er formaður BHM. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Halldórsdóttir Verkalýðsdagurinn Kjaramál Jafnréttismál Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar