Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Agnar Már Másson skrifar 29. apríl 2026 22:14 Þór Sigurgeirsson er bæjarstjóri Seltjarnarness og oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarfélaginu. Vísir/Vilhelm Seltjarnarnesbær skilaði tapi af A-hluta níunda árið í röð. Miðað við íbúafjölda er rekstrarhalli sveitarfélagsins þrefalt meiri en rekstrarhalli Reykjavíkurborgar, að sögn minnihlutans í bæjarstjórn Seltjarnarness.
Rekstrartekjur Seltjarnarness 2025 námu um 7,9 milljörðum króna fyrir A- og B-hluta og fóru vissulega umfram áætlun. Það dugði þó ekki til enda var heildartap bæjarins eftir afskriftir um 350 milljónir króna. Áætlun hafði gert ráð fyrir um 14 milljóna króna hagnaði en A-hlutinn einn og sér skilaði 478 milljóna króna tapi. Þetta kemur fram í ársreikningi Seltjarnarnesbæjar, sem var undirritaður á bæjarstjórnarfundi í dag. Reikningurinn hefur ekki verið birtur á vef bæjarins en Vísir hefur hann undir höndum. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem eru í eigu Seltjarnarness, svo sem Hitaveita Seltjarnarness og Vatsnveita Seltjarnarnes , en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Sveitarfélagið hefur skilað tapi á hverju einasta ári frá og með 2017. Á sama tíma hefur eigið fé af A-hluta dregist saman um 56 prósent frá 2021, úr um 3,4 milljörðum króna í tæplega 1,6 milljarða króna. Um 77 prósent af heildarrekstrartekjum sveitarfélagsins eru skatttekjur, svo sem útsvar, fasteignaskattur eða tekjur úr Jöfnunarsjóði. Útsvar á nesinu er með því lægsta á höfuðborgarsvæðinu, um 14,54 prósent. Mesta gjaldaaukningin virðist falla undir annan rekstrarkostnað af A-hluta, en þar fóru gjöld rúmlega hálfum milljarði króna umfram áætlun; gert var ráð fyrir um 2,5 milljörðum króna í gjöld, sem reyndist svo vera rúmir þrír milljarðar króna. Erfitt er að segja til um hvað veldur þessari gjaldaaukningu en annar rekstrarkostnaður skiptist í tvennt í reikningi bæjarfélagsins; styrki, framlög og annan kostnað annars vegar og vöru- og þjónustukaup, sölutap hins vegar. Gjaldaaukningin skilar sér nær alfarið undir síðarnefnda liðnum. Laun og launatengd gjöld af A-hluta námu 3,7 milljörðum króna en áætlun var sem var um 102 milljónum umfram áætlun. Heildarstöðugildi voru 263 í árslok, samkvæmt reikningnum. Minnihlutinn í bæjarstjórn vekur einnig athygli á því í tilkynningu til fjölmiðla að skuldir á hvern íbúa á Seltjarnarnesi nemi nú 1,87 milljónum króna. Íbúar voru 4.757 þann 31. desember 2025. Þá bendir minnihlutinn á að hallinn sé þrefalt meiri en í Reykjavík, sé honum deilt á íbúafjölda sveitarfélaganna. Til að setja þessa tölu í samhengi er þessi halli þrefalt hærri en halli á rekstri Reykjavíkurborgar, sé hallanum deilt á íbúafjölda sveitarfélaganna. Samhliða þessu hafi lausafjárstaðan versnað til muna og bendir minnihlutinn á að um áramótin hafi bærinn aðeins átt handbært fé sem dygði fyrir um þriggja daga rekstri. Sigurþóra Bergsdóttir, fulltrúi S-listans í minnihluta bæjarstjórnar, bókaði á fundi bæjarráðs í dag: „Í stað þess að auka ekki skuldir og fjárfesta í grunnþjónustu er bærinn fastur í viðvarandi hallarekstri sem hefur nú varað í tíu ár. Uppsafnaðan halla síðustu tíu ára upp á 3,7 milljarða króna á A-hluta er ekki hægt að skýra með ófyrirséðum áföllum; þetta er mynstur sem því miður virðist ekki vera að breytast.“ Þá sagði hún fjárhagsstöðu bæjarins til marks um skert þjónustustig og skort á fjárfestingargetu til framtíðar. Tengd skjöl SeltjarnarnesPDF515KBSækja skjal
Seltjarnarnes Rekstur hins opinbera Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Fleiri fréttir Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Sjá meira