Innherji

Verðbólguþróunin í rétta átt og ætti að slá út af borðinu stóra vaxta­hækkun

Hörður Ægisson skrifar
Verðbólgutölurnar í morgun eru þær síðustu sem birtast áður en Ásgeir Jónsson og peningastefnunefnd Seðlabankans kynnir sína næstu vaxtaákvörðun miðvikudaginn 20. maí.
Verðbólgutölurnar í morgun eru þær síðustu sem birtast áður en Ásgeir Jónsson og peningastefnunefnd Seðlabankans kynnir sína næstu vaxtaákvörðun miðvikudaginn 20. maí. Vísir/Vilhelm

Verðbólgumælingin í apríl reyndist vera í lægri kantinum miðað við meðalspá sex greinenda og ólíkt þróun síðustu mánaða voru verðhækkanir ekki á breiðum grunni, en undirliðir á borð við mat, drykk, fatnað og húsgögn stóðu nánast í stað. Skuldabréfafjárfestar brugðust vel við verðbólgutölunum sem ættu að slá út af borðinu vangaveltur um að Seðlabankinn hækki vextina um 50 punkta á næsta fundi.


Tengdar fréttir

Heimilin óttast viðvarandi háa verðbólgu og flykkjast í fasta óverð­tryggða vexti

Á allra síðustu mánuðum hafa orðið talsvert umskipti á lánamarkaði en samhliða því að væntingar í efnahagslífinu hafa breyst til hins verra, með auknum líkum á þrálátri verðbólgu og háum stýrivöxtum, hafa heimilin brugðist við með því að færa sig yfir í óverðtryggð lán á föstum vöxtum. Hrein ný lántaka heimila á slíku lánaformi hefur aldrei mælst meiri en í liðnum mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×