Mikilvægi kennslu í nýsköpun í háskólum Ólafur Eysteinn Sigurjónsson skrifar 29. apríl 2026 11:45 Nýsköpun er gjarnan tengd við sprotafyrirtæki, frumkvöðla. stórar fjárfestingar og uppfinningar sem ætlað er að breyta heiminum. Það er þó aðeins hluti af myndinni. Nýsköpun snýst líka um að koma auga á það sem má gera betur, finna lausnir og hafa hugrekki til að prófa nýjar leiðir. Hún getur átt sér stað hvar sem er; í litlu fyrirtæki, stórri stofnun, skólastofu, heilbrigðiskerfinu, tæknifyrirtæki eða opinberri þjónustu. Þess vegna er mikilvægt að háskólanemar fái tækifæri til að læra um nýsköpun á hagnýtan hátt. Námskeiðið Nýsköpun og stofnun fyrirtækja sem er kennt við Háskólann í Reykjavík er gott dæmi um slíkt. Þar fá nemendur ekki aðeins fræðilega innsýn í frumkvöðlastarf, heldur vinna þeir sjálfir með hugmyndir, þróa þær áfram og læra hvað þarf til að breyta hugmynd í raunverulegt verkefni. Á námskeiðinu vinna nemendur þverfaglega frá ólíkum deildum skólans að viðskiptahugmynd með nýsköpun að leiðarljósi. Þarna koma saman rúmlega 500 ungmenni með ólíkan bakgrunn með það að leiðarljósi að leysa eitthvert vandamál með nýsköpunarhugsun. Nemendurnir greina vandamál og þarfir, skoða hverjir væru mögulegir notendur eða viðskiptavinir, meta hvort lausnin sé raunhæf og velta fyrir sér hvernig hægt væri að koma henni í framkvæmd. Slík vinna krefst þess að nemendur noti þekkingu sína á annan hátt en þeir gera í hefðbundnum prófum. Þeir þurfa ekki bara að kunna námsefnið utan af, heldur líka kunna að beita því. Þessi aðferðarfræði skiptir miklu máli á tímum þar sem við sjáum atvinnulífið breytast hratt. Við þurfum fólk sem getur hugsað sjálfstætt og unnið með óvissuþætti á tímum nýrrar tækni, gervigreindar, sjálfbærni og alþjóðlegrar samkeppni. Námskeið eins og Nýsköpun og stofnun fyrirtækja þjálfar einmitt þessa hæfni. Nemendur læra að góð hugmynd er aðeins upphafið. Til að hugmynd geti síðan orðið að einhverri afurð þarf fyrst að rannsaka hana, prófa hana, fá endurgjöf og bæta hana. Stundum þarf að byrja alveg upp á nýtt jafnvel en það er ekki síður mikilvægur lærdómur, því þannig virkar nýsköpun oft í raunveruleikanum. Einn af styrkleikum námskeiðsins er að það tengir saman nemendur úr öllum áttum með fjölbreytta þekkingu enda verður nýsköpun sjaldan til út frá einni einangraðri námsgrein. Tæknileg lausn eða samfélagsleg lausn þarf oft viðskiptalega hugsun. Fyrir góða þjónustu þarf skilningur á fólki að vera til staðar. Ný vara krefst þekkingar á hönnun, fjármálum, lögfræði, markaðssetningu og tæknilegrar útfærslu. Þegar nemendur með fjölbreyttan bakgrunn vinna saman læra þeir að sjá vandamál frá ólíkum sjónarhornum. Það er dýrmæt reynsla. Fyrir HR passar námskeiðið vel við áherslu skólans á hagnýtt nám, tengsl við atvinnulíf og lausnamiðaða hugsun. HR hefur byggt upp sterka menningu í kringum verkefnavinnu, tækni, frumkvöðlastarf og samstarf við fyrirtæki og samfélag. Námskeiðið er þannig hluti af stærri hugmynd um hvað háskólamenntun á að fela í sér. Hún á ekki bara að miðla þekkingu, heldur líka hjálpa nemendum að nota hana. Það er líka mikilvægt að horfa á nýsköpun í víðara samhengi. Ísland er lítið samfélag og þarf að nýta hugvit, menntun og sköpunarkraft vel. Við þurfum fólk sem getur þróað nýjar lausnir í orkumálum, heilbrigðisþjónustu, menntun, sjávarútvegi, ferðaþjónustu, hugbúnaði og opinberri stjórnsýslu. Slíkar lausnir verða ekki til af sjálfu sér. Þær verða til þegar fólk hefur þekkingu, færni og kjark til að prófa sig áfram í breytilegum heimi t.d. með nýsköpun að leiðarljósi. Höfundur er aðstoðarrektor rannsókna, nýsköpunar og atvinnulíftengsla við HR. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Nýsköpun Mest lesið MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé Skoðun Á Ísland að segja sig úr UEFA? Theódór S. Halldórsson Skoðun Þjóðinni er að blæða út – og þetta á bara að reddast Vilhelm Jónsson Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson Skoðun Ástæður þess að ég kýs NEI þann 29. ágúst Sigurður P. Sigmundsson Skoðun Já er uppgjöf og Nei er ekki nóg Ágústa Árnadóttir Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir Skoðun Réttmæt kjörskrárvinnsla Haukur Arnþórsson Skoðun Skoðun Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar Skoðun Réttmæt kjörskrárvinnsla Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Látum ekki sumarið koma okkur aftur á óvart í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Á Ísland að segja sig úr UEFA? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Já er uppgjöf og Nei er ekki nóg Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Akkeri og trygging fyrir Ísland Gunnar Örn Gunnarsson skrifar Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks á Íslandi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson skrifar Skoðun Heilsuspillandi aðbúnaður fanga er dýrt stjórnunarlegt fúsk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun 29. ágúst ‒ Fullveldið endurheimt? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Fyrsta jáið skiptir máli Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Atvinnulífið ætti að vilja sjá samninginn Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Endalok einkalífsins: Hið alsjáandi auga Finnur Ágúst Ingimundarson skrifar Skoðun Að semja gegn sjálfum sér Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Ástæður þess að ég kýs NEI þann 29. ágúst Sigurður P. Sigmundsson skrifar Skoðun Heimurinn brennur minna – en það er aðeins hálf sagan sögð hjá Lomborg Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ég ætla að treysta komandi kynslóðum Margrét Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvernig er að eiga sæti við borðið Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Skoðun Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar Skoðun Þjóðinni er að blæða út – og þetta á bara að reddast Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Pólitískir vindhanar sem vilja nú hafa afstöðu af þjóð Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun „Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB,“ sagði engin þjóð aldrei Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Bandaríkin Gunnar Björgvinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar
Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar
Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar
Skoðun Heimurinn brennur minna – en það er aðeins hálf sagan sögð hjá Lomborg Haukur Logi Jóhannsson skrifar
Skoðun Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar