Nýsköpun sem nærir Berglind Rán Ólafsdóttir og Björn Örvar skrifa 28. apríl 2026 07:31 Það hefur líklega ekki oft gerst að þrír ungir menn setjist niður og ákveði að stofna fyrirtæki með það að markmiði að breyta byggfræi í líftækniverkssmiðju fyrir nýstárleg prótein. Hugmyndin er djörf og hún hljómar langsótt. Bygg er kornafurð af grasaætt, fræin full af trefjum, kolvetnum og forðapróteinum. Það hefur verið ræktað í þúsundir ára á ökrum sem fæða eða fóður. Hvernig er hægt að breyta þessum fræpróteinum í byggi í önnur og verðmætari prótein? Svarið við því er flókið, en þegar hugmyndir fá hljómgrunn hjá opinberum aðilum og framsýnum fjárfestum getur nýsköpun verið áhrifarík. Djarfar hugmyndir, studdar vísindalegri þekkingu og frjórri hugsun, verða að veruleika, og síðan að verðmætum, sem skapa störf og velmegun fyrir samfélagið. Árið 2001 stofnuðu þrír íslenskir frumkvöðlar, þeir Björn Örvar, Einar Mäntylä og Júlíus Kristinsson, fyrirtækið ORF Líftækni. Þeir höfðu lokið framhaldsnámi í nýrri grein innan erfðafræðinnar og frekari rannsóknir höfðu verið stundaðar á erlendri grundu þegar hugmyndin allt í einu blasti við: Nýtum erfðatækni til að breyta byggfræi í verksmiðju sem framleiðir verðmæt prótein. ORF fagnar um þessar mundir 25 ára afmæli. Við lítum stolt um öxl á þessum tímamótum og gleðjumst yfir árangrinum og að blússandi nýsköpun eigi sér ennþá stað innan veggja fyrirtækisins. Við gleðjumst líka yfir því að hafa náð að skapa samfélagi okkar verðmæt störf, ekki síst fyrir hámenntað og fjölbreytt vinnuafl. Hjá ORF er unnið baki brotnu við að rannsaka og þróa nýjar vörur, og margar þeirra eru þegar komnar á erlenda markaði við góðan orðstýr og eftirspurn. Og ORF heldur áfram að ryðja brautina: Heimurinn þarf dýraprótein, og heimurinn mun þurfa meira dýraprótein. Nýjar leiðir til að framleiða næringarrík dýraprótein eru nauðsynlegar, til viðbótar við þær hefðbundnu. ORF hefur náð að búa til tækni og vörur sem gera heimsbyggðinni kleift að framleiða þessi prótein með umhverfisvænum hætti og mæta þessari þörf. Þannig gerir MESOkine vörulínan frá ORF öðrum fyrirtækjum í matvælaiðnaði kleift að framleiða vistkjöt til neyslu, án þess að þurfa nokkurn tímann að drepa dýr, halda dýrum á beit, eða brjóta land og ryðja skóga undir beit. Áætlað er að á þessari öld muni þörfin fyrir slíka vistvæna framleiðslu á dýrapróteinum, vistkjöti, vaxa gríðarlega. Okkur hjá ORF hefur tekist að staðsetja okkur á hárréttum stað fyrir þessa þróun og við erum reiðubúin þegar þessi markaður fer á flug. Það getur skapað stórkostleg verðmæti fyrir íslenskt samfélag. Fyrirtækið hefur einnig, í gegnum þrotlaust rannsóknar- og þróunarstarf, náð að koma öðrum mikilvægum vörulínum á koppinn, en tækni fyrirtækisins nýtist til dæmis til að framleiða háhreinsaða vaxtarþætti, ISOkine, sem eru notaðir í stofnfrumurannsóknum í læknisfræði. Enn önnur vörulína, DERMOkine, er notuð í ákaflega vinsælar húðvörur fyrirtækisins Bioeffect. Það fyrirtæki, og vörumerki, er einmitt sprottið úr hinu 25 ára gamla nýsköpunarstarfi ORF. Þannig eflir nýsköpun samfélagið, býr til ný tækifæri, vinnustaði og tekjumöguleika, og bætir lífskjörin. En það má ekki missa dampinn. Nýsköpun þarfnast stuðnings. Það þarf að hlúa að henni. ORF Líftækni hefur notið ómetanlegs stuðnings Tækniþróunarsjóðs, Rannsóknarmiðstöðvar Íslands (Rannís) og sjóða Evrópusambandsins og naut á upphafssárum sínum styrkja og aðbúnaðar hjá Rannsóknastofnun Landbúnaðarins. Stuðningurinn skilar sér ríkulega til baka, en það er líka mikilvægt að stuðningurinn rofni ekki á úrslitastundu, því nýsköpun er langhlaup. Sú óvissa sem hefur ríkt undanfarið varðandi endurgreiðslu á rannsóknar- og þróunarkostnaði frá Rannís er mikið áhyggjuefni. Það er gríðarlega mikilvægt að stjórnvöld höggvi á hnútinn og taki af allan vafa um það að þau standi að baki nýsköpun á Íslandi af heilum hug. Í vikunni er Iceland Innovation Week haldin í Reykjavík. Við hjá ORF hlökkum til að taka þátt í þeim hluta hátíðarinnar sem fjallar sérstaklega um matvæli framtíðarinnar, undir fyrirsögninni Future of Food. Á vegum ORF Líftækni og Iceland Innovation Week mun hollenski vísindamaðurinn og brautryðjandinn Mark Post flytja erindi. Árið 2013 kynnti Mark fyrir heimsbyggðinni fyrsta hamborgarann sem var alfarið gerður úr vistkjöti. Nýjar lendur hafa opnast í kjölfarið, ný tækifæri og nýjar leiðir fyrir mannkynið til að lifa og nærast í sátt við umhverfið. Við hjá ORF Líftækni, með öflugum stuðningi samfélagsins, erum stolt af því að vera í fararbroddi fyrir hönd Íslendinga í þessum mikilvæga leiðangri, þar sem líftækniverksmiðjan okkar, byggfræið, heldur áfram að búa til nýstárleg prótein fyrir aukna velsæld og betri veröld. Berglind Rán Ólafsdóttir er forstjóri ORF Líftækni Björn Örvar er stofnandi og vísindastjóri ORF Líftækni Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Berglind Rán Ólafsdóttir Nýsköpun Mest lesið Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar