Tíska og hönnun

Týndi strax 120 þúsund króna sokkum

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Friðrik Róbertsson, betur þekktur sem Flóni, opnaði sig um kostnaðarsöm sokkakaup í spjalli hjá Orku.
Friðrik Róbertsson, betur þekktur sem Flóni, opnaði sig um kostnaðarsöm sokkakaup í spjalli hjá Orku. Elísabet Blöndal

Tónlistarmaðurinn Friðrik Róbertsson, betur þekktur sem Flóni, hefur mikinn áhuga á klæðaburði og tísku og hefur fjárfest í ýmsum hátískuflíkum undanfarin ár. Sum kaup hafa verið góð en önnur ekki eins farsæl.

Flóni, sem er fæddur árið 1998, skaust upp á íslenska stjörnuhimininn árið 2017 og hefur gert það gott sem tónlistarmaður og rappari. Hann á að baki sér smelli á borð við Trappa, Falskar ástir, Leika, Party, Ungir strákar og Engill. 

Hann sagði frá rándýrum sokkakaupum í spjalli við samfélagsmiðlastjóra orkudrykksins Orku á samfélagsmiðlinum TikTok og því miður náði hann ekki að nota fínu sokkana oft.

„Ég hef keypt mjög dýra sokka sem kostuðu 120 þúsund krónur, Gucci sokka, þegar ég var á svona öðru árinu mínu í tónlist. Ég týndi þeim strax og það skipti engu máli. Þetta voru líka bara ljótustu Gucci sokkar sem ég hef séð sko,“ segir Flóni kíminn í myndbandi sem má sjá hér fyrir neðan:

@orkaorkaorkaorka Replying to @user579954688 @𝐅𝐋𝐎𝐍𝐈 10 ára tónleikar??👀 #íslenskt #flóni #fyp #orka #chat ♬ original sound - Orka

Þar staðfestir Flóni líka hjúskaparstöðu sína en hann og tónlistarkonan Kolfreyja, betur þekkt sem Alaska, eru kærustupar eftir að hafa verið að stinga nefjum saman undanfarna mánuði. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.