Körfubolti

Davíð Tómas segir flautukörfu Hilmars Smára lög­lega: „Ekki skref“

Aron Guðmundsson skrifar
Davíð Tómas, körfuboltadómari, er á því að karfa Hilmars Smára Henningssonar sem réði úrslitum í Garðabænum í kvöld hafi verið lögleg
Davíð Tómas, körfuboltadómari, er á því að karfa Hilmars Smára Henningssonar sem réði úrslitum í Garðabænum í kvöld hafi verið lögleg Vísir/Samsett

Körfuboltadómarinn Davíð Tómas Tómasson segir Hilmar Smára Henningsson, leikmann Stjörnunnar, ekki hafa skrefað í aðdraganda flautukörfu sem tryggði Stjörnunni sigur í framlengdum leik gegn Tindastól í kvöld. 

„Skref,“ sagði Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, um flautukörfu Hilmars Smára í viðtali við Andra Má Eggertsson á Sýn Sport eftir leik. „Hilmar skrefar í þessu skoti á stepbackinu.“

„Tvennt sem er mikilvægast í þessu“

Davíð Tómas sem býr að mikilli reynslu sem dómari hérlendis sem og í alþjóðaboltanum er þar ekki sammála. 

„Það er kannski tvennt sem er mikilvægast í þessu,“ segir Davíð Tómas og útskýrir hvers vegna flautukarfa Hilmars Smára er lögleg að hans mati.  

„Númer eitt. Þegar að Hilmar grípur boltann í gather steppinu sínu rétt fyrir utan þriggja stiga línuna þá lendir hann jafnfætis en ekki á öðrum fætinum fyrst,“ segir Davíð Tómas í samtali við Vísi. 

Hilmar Smári dripplar boltanum rétt fyrir utan þriggja stiga línuna eftir að hafa fengið boltann úr innkasti. Í þann mund sem hann feikar og virðist ætla að láta vaða í átt að körfunni fyrir utan þriggja stiga línuna er hann að taka svokallaða stepback hreyfingu.

„Með því að lenda jafnfætis þar má Hilmar Smári samkvæmt reglum þar af leiðandi taka eitt, tvö skref og fara upp í skot eða lay-up. Þetta er lykillinn. Hann lendir jafnfætis og er því með núll skref. Ekki eitt ef hann hefði fyrst lent á öðrum hvorum fætinum. Hann má því stíga fram í vinstri, svo í hægri og taka skotið. Alveg eins og þegar menn eru að fara í layup. Þetta er það sama.

Þegar maður lendir vinstri/hægri eða hægri/vinstri þá er fóturinn sem þú lendir á stoðfóturinn þinn. Svokallaður pivot-fótur. Í því tilfelli máttu bara stíga fram í annan fótinn og lyfta upp stoðfætinum til þess að skjóta. Ef þú ert ekki búinn ákvarða stoðfót máttu velja þér stoðfót. Sem þýðir að Hilmar Smári getur stígið fram í vinstri fót í fyrsta skrefi, tekur svo skref með hægri og leggur boltann upp í körfuna.

Númer tvö sé að þegar að Hilmar Smári er kominn með boltann fyrir utan þriggja stiga línuna þá shöfflar hann fótunum pínulítið. 

„Þetta er mjög svipað og með Elvar Má og atvik í landsleik Íslands og Litháen. Ég heyrði í kollegum mínum erlendis þá og þeir eru á því að það hefði ekki átt að dæma skref á Elvar í því tilviki. FIBA er með verklag sem þeir kalla microscopic. Ef þú ert með örlitlar hreyfingar til að koma þér af stað þá á maður að líta fram hjá því. Þetta pínulitla shöffl þarna er svo pínulítið að það er ekki eitthvað sem maður á að vera sækja í eða vera leita að.“

Davíð Tómas fer nánar yfir allt í tengslum við flautukörfu Hilmars Smára Henningssonar í innslagi á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×