Áttu vart orð yfir tilþrifum í Garðabæ: „Þetta var rosalegt“ Aron Guðmundsson skrifar 25. apríl 2026 20:00 Leikur tvö í einvígi Stjörnunnar og Tindastóls er nú í gangi Vísir/Samsett Lýsendur Sýnar Sport á leik tvö í einvígi Stjörnunnar og Tindastóls áttu vart orð yfir tilþrifum Luka Gasic sem varði tilraun Taiwo Badmus, leikmanns Tindastóls til þess að troða yfir hann.
Nú stendur yfir leikur tvö í undanúrslitaeinvígi liðanna í Garðabænum þar sem að Tindastóll reynir að hefna fyrir tap í fyrsta leik liðanna í Síkinu á Sauðárkróki á dögunum. Klippa: „Ég hélt þetta væri ekki hægt“ Stólarnir hafa verið skrefi á undan í leiknum í fyrri hálfleik þegar að þetta er skrifað og í stöðunni 25-33 Tindastól í vil ætlaði Taiwo Badmus, leikmaður liðsins gjörsamlega að brjóta Garðbæinga niður með því að troða boltanum yfir Luka Gasic, leikmanns Stjörnunnar. Badmus hefur í þessari stöðu, með sína hæð og stökkkraft yfirleitt ekki átt í neinum vandræðum með svona troðslur í gegnum tíðina en hann fékk alvöru vörn frá Gasic á móti sér. Gasic varði skot Badmusar og lýsendur leiksins, Heiðar Snær og Jóhann Árni áttu vart orð yfir tilþrifunum. „Þvílík vörn hjá Luka Gasic,“ sagði Heiðar Snær. „Hann mætti honum bara á efstu hæð og blokkaði hann. „Þetta var rosalegt,“ bætti Jóhann við. „Ég hélt þetta væri ekki hægt á móti Badmus,“ sagði Heiðar þá. „Ekki í íslensku deildinni,“ bætti Jóhann þá við. „Ég hef ekki séð þetta áður. Að Badmus sé mætt í þessari hæð.“ Tilþrifin má sjá hér ofar í fréttinni. Leikur liðanna er nú í gangi í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland. Fylgjast má með textalýsingu frá honum í frétt hér fyrir neðan.
Bónus-deild karla Tindastóll Stjarnan Mest lesið Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Fótbolti Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Merino hryggði Ronaldo í hinsta dansinum Fótbolti Trump um símtalið til Infantino: „Ég fékk þá til að gera þetta“ Fótbolti Sepp Blatter: „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum“ Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Fleiri fréttir Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Sjá meira