Körfubolti

Pabbi Hemma fór úr Höllinni og sá aldrei þristinn fræga

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hermann Hauksson var hetja Njarðvíkur í bikarúrslitaleiknum fræga gegn Keflavík 1999.
Hermann Hauksson var hetja Njarðvíkur í bikarúrslitaleiknum fræga gegn Keflavík 1999. sýn sport

Í níunda þætti Augnablikanna er fjallað um fræga þriggja stiga körfu Hermanns Haukssonar í bikarúrslitaleik Njarðvíkur og Keflavíkur 1999. Njarðvíkingar voru í ómögulegri stöðu þegar skammt var til leiksloka en tryggðu sér framlengingu eftir ótrúlegan endasprett og unnu leikinn á endanum.

Hermann gekk í raðir Njarðvíkur frá KR fyrir tímabilið 1998-99. Hann stimplaði sig heldur betur inn í samfélagið í Njarðvík með framlagi sínu í bikarúrslitaleiknum gegn Keflavík 1999.

Njarðvíkingar héldu í sókn undir lok leiks, þremur stigum undir. Teitur Örlygsson tók þriggja stiga skot sem geigaði en Hermann tók frákastið.

„Ég fékk boltann í hendurnar og þá var ekkert annað í stöðunni en að drippla boltanum út fyrir þriggja stiga línu og reyna eitthvað. Og það fór eins og það fór,“ sagði Hermann í Augnablikunum. 

Klippa: Augnablikin - Snúið við á Suðurlandsbraut

„Þetta gerist allt svo ógeðslega hratt þannig að þegar ég fæ boltann í hendurnar er ég aldrei að hugsa um að finna einhvern annan eða gefa hann. Því ég vissi ekki hvort ég myndi einu sinni ná þessu. En ég náði þessu.“

Komu til baka þegar framlengingin var að klárast

Einhverjir stuðningsmenn Njarðvíkur voru farnir úr Laugardalshöllinni áður en leikurinn kláraðist, enda staða þeirra grænu slæm. En þeir sáu eftir því og sneru við.

„Einhverjir áhorfendur sem voru komnir upp á ljósin á Suðurlandsbraut voru að koma til baka þegar framlengingin var alveg að klárast,“ sagði Friðrik. Meðal þeirra sem fóru úr Höllinni var faðir Hermanns.

„Pabbi var farinn og sá aldrei þetta þriggja stiga skot og framlenginguna. Hann kom bara heim og konan hans sagði að hún skildi ekki hvað í ósköpunum hann væri að gera heima. Hann sagði að þeir væru búnir að klúðra þessu. Þessir aumingjar væru búnir að tapa leiknum eins og hann sagði orðrétt. Hann fékk það helvíti vel í bakið og ég stríði honum enn á þessu í dag,“ sagði Hermann.

Brot úr „Snúið við á Suðurlandsbraut“, níunda þætti Augnablikanna, má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Þátturinn verður sýndur á Sýn Sport Ísland klukkan 18:05 í kvöld. Þáttinn má svo nálgast á efnisveitu Sýnar Sport.


Tengdar fréttir

Ferðalagið hans Jeb Ivey: Spurði Inga hvort hann væri brjálaður

Flestir blótuðu eldgosinu í Eyjafjallajökli í sand og ösku en ekki fólkið í Stykkishólmi. Í þriðja þætti Augnablikanna er sagan af ótrúlegu ferðalagi Jebs Ivey fyrir annan leik Snæfells og Keflavíkur í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla 2010 rakin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×