Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Ágúst Orri Arnarson skrifar 24. apríl 2026 11:09 Hákon Rafn Valdimarsson hefur verið ánægður hjá Brentford. Getty/Molly Darlington Hákon Rafn Valdimarsson hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum við Brentford í ensku úrvalsdeildinni. Nýr samningur Hákons gildir til ársins 2030 með möguleika á tveggja ára framlengingu.
Hákon hefur verið í hlutverki varamarkmanns síðan hann kom til Brentford árið 2024 frá Elfsborg í Svíþjóð. Hann hefur því aðeins spilað tólf leiki fyrir Brentford í öllum keppnum, einn í ensku deildinni en hina í bikarkeppnum. Á þessu tímabili náði Hákon frábærum árangri með Brentford í deildabikarnum og fór í átta liða úrslit en þar féll liðið úr leik gegn Manchester City sem varð meistari. 📨 (1) New Message: Hákon Valdimarsson pic.twitter.com/fFYTIjNgNN— Brentford FC (@BrentfordFC) April 24, 2026 Þrátt fyrir að hafa verið í litlu hlutverki hefur Hákon verið ánægður hjá Brentford og segist hafa tekið miklum framförum. „Síðustu tvö og hálft ár hafa verið frábær. Ég hef lært mikið og þróast sem markmaður. Mér líður eins og allt öðrum manni, ég hef bætt mig á öllum sviðum markvörslunnar. Ég er mjög ánægður hér og hef verið sáttur með Keith [Andrews, sem tók við þjálfun liðsins í fyrra]. Við eigum gott samband og spjöllum mikið saman,“ sagði Hákon í viðtali eftir að hafa skrifað undir nýjan samning. Hákon minntist einnig á markmannsþjálfara liðsins, Manu Sotelo, og sagði hann vera stóra ástæðu fyrir framförum sínum. „Manu ýtir okkur áfram á hverjum einasta degi. Án hans hefði ég aldrei tekið svona miklum framförum síðustu ár. Hann hefur verið mjög mikilvægur,“ sagði Hákon en Gróttamaðurinn fékk ekki mikla markmannsþjálfun á sínum yngri árum. Viðtalið má sjá hér fyrir neðan. "I’ve learnt and developed a lot. I just feel completely different. I’ve improved in everything as a goalkeeper" 💬Hákon Valdimarsson on his new contract, the GK unit, and his aims going forward pic.twitter.com/08b2qzVv8Y— Brentford FC (@BrentfordFC) April 24, 2026
Enski boltinn Brentford FC Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Víkingur - Beer Sheva | Ísraelsmenn mæta í Víkina Fótbolti Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira