Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Freyja Þórisdóttir skrifar 24. apríl 2026 16:55 Sjónarhorn flakkarans er listaverk Ólafs Elíassonar en það samanstendur af skúlptúr og göngustíg. Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar í Eyjum birti þessa mynd af sér ásamt Írisi bæjarstjóra í Vestmannaeyjum og listamanninum frá íbúafundi sem fram fór í lok mars. Vísir/Smári Jökull/Facebook Minnisvarði um eldgosið í Heimaey verður vígður þann 12. maí en á athöfninni munu Hanna Katrín Friðriksdóttir atvinnuvegaráðherra og listamaðurinn Ólafur Elíasson vera meðal ræðumanna. Eyjamenn töldu sumir hverjir að verkið væri röskun á svæðinu en eftir kynningu sem haldin var á íbúafundi virðist sem fólk hafi róast. Þar kom fram að hægt væri að láta verkið hverfa sporlaust. „
Ég er gríðarlega spenntur fyrir þessu,“ segir Páll Magnússon í samtali við Vísi en hann er oddviti bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey, sem er annar af flokkunum sem mynda meirihluta í bæjarstjórn. Þann tólfta maí verður fyrri hluti verksins vígður og er öllum áhugasömum velkomið að fjölmenna á athöfnina. Útsýniskúlan er staðsett þannig að ef horft er út um gat í henni miðri blasir eldfjallið við. Svo er gönguferðin um gíginn hluti af upplifuninni.Vísir/Smári Jökull „Þetta verður þannig að listamaðurinn sjálfur kemur ásamt sínu fylgdarliði frá Berlín, stúdíóið hans er þar og margir hafa komið að verkinu þaðan. Síðan kemur allavega atvinnuvegaráðherra, Hanna Katrín, ásamt sínu fylgdarliði,“ segir Páll og útskýrir að verkið sé í raun tveir hlutar: kúpullinn og svo göngustígur í kringum gíginn. „Þarna er verið að víga þennan fyrri hluta sem er þessi skáli eða kúpull sem listamaðurinn hannaði og var smíðaður í Þýskalandi og markar upphafið að því að ljúka við göngustíginn í kringum gíginn sem er órjúfanlegur þáttur af upplifuninni,“ bætir hann við. Ekkert óafturkræft rask Hann segir skiljanlegt að íbúar í Eyjum hafi haft orð á því að verkið gæti raskað náttúrufegurðinni á svæðinu sem hefur líka mikla tilfinningalega þýðingu fyrir Eyjamenn. En það hafi huggað marga að komast að því að verkið er með öllu afturkræft. Verkið var unnið í samstarfi við fjölmarga listamenn og kom arkitektastofan Landslag að því ásamt fleirum að sjá til þess að allar framkvæmdir við þetta yrðu afturkræfar. „Ég held að eftir að Ólafur, listamaðurinn, kom í heimsókn til Vestmannaeyja og hélt fund með íbúum í Eldheimum þar sem þetta var kynnt þá hafi fólk geta andað léttar. Ef til þess kemur eftir hundrað eða tvö hundrað ár að það eigi ekki lengur að standa þá væri til dæmis hægt að loka stígnum og láta allt hverfa án nokkurra ummerkja,“ segir Páll en hann tjáir blaðamanni einnig að verkið muni bæta öryggi á svæðinu. Auki öryggi á svæðinu Páll segir aðalkostinn við þetta vera að með göngustígnum sé náttúran vernduð og með því á hann við að í stað þess að það haldi áfram að myndast þarna alls konar troðningar þá verði ákveðin leið fyrir fólk til að ganga eftir. Þessi troðningar séu margir hverjir nálægt brúninni og það geti verið hættulegt að fara eftir þeim. Staðsetning kúpulsins miðast við stöðu sólarinnar og fangar til dæmis geisla hennar beint inn um ljósopið klukkan hálf eitt 23. janúar hvers árs til minnis um eina af minnisstæðustu dagsetningunum í sögu eldgossins.Vísir/Smári Jökull „Sumir af þessum troðningum eru alveg við brúnina og göngustígur mun þannig verja jarðveginn og sömuleiðis tryggja bætt öryggi þeirra sem ganga hringinn,“ segir Páll. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segist vona eindregið að Landeyjarhöfn verði komin í gagnið á næstunni og að allir sem ætli sér til Eyja fyrir athöfnina geti mætt. Þá segir Páll að áætlað sé að seinni hluti verksins, göngustígurinn, verði fullbúinn fyrir lok árs en að framkvæmdir standi yfir í sumar.
Styttur og útilistaverk Vestmannaeyjar Heimaeyjargosið 1973 Menning Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Ólafur Elíasson kynnti verk sitt í eyðimörkinni í Katar Íslensk-danski listamaðurinn Ólafur Elíasson kynnti í gær verk sitt í eyðimörkinni í Katar í tengslum við listahátíðina Qatar Creates Week. 25. október 2022 07:48 Ólafur Elíasson tekur yfir Piccadilly Circus og Times Square Ólafur Elíasson mun taka yfir gríðarstór auglýsingaskilti í stórborgum á borð við London og New York. Hann er með þekktari listamönnum landsins og þó víðar væri leitað en list hans má finna um allan heim. 24. september 2024 14:11 Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Listamaðurinn Ólafur Elíasson fær hátt í 88,5 milljónir króna frá ríkinu og Vestmanneyjabæ fyrir minnisvarða um eldgosið í Heimaey sem til stendur að reisa á Eldfelli. Þá er ótalinn kostnaður vegna gerðar göngustígs og annarra framkvæmda sem fyrirhugaðar eru á svæðinu en áætlaður heildarkostnaður gæti numið allt að 220 milljónum. Ríflega sex hundruð manns hafa skrifað undir undirskriftalista þar sem minnisvarðanum er mótmælt. 12. maí 2025 16:00 Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira
Ólafur Elíasson kynnti verk sitt í eyðimörkinni í Katar Íslensk-danski listamaðurinn Ólafur Elíasson kynnti í gær verk sitt í eyðimörkinni í Katar í tengslum við listahátíðina Qatar Creates Week. 25. október 2022 07:48
Ólafur Elíasson tekur yfir Piccadilly Circus og Times Square Ólafur Elíasson mun taka yfir gríðarstór auglýsingaskilti í stórborgum á borð við London og New York. Hann er með þekktari listamönnum landsins og þó víðar væri leitað en list hans má finna um allan heim. 24. september 2024 14:11
Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Listamaðurinn Ólafur Elíasson fær hátt í 88,5 milljónir króna frá ríkinu og Vestmanneyjabæ fyrir minnisvarða um eldgosið í Heimaey sem til stendur að reisa á Eldfelli. Þá er ótalinn kostnaður vegna gerðar göngustígs og annarra framkvæmda sem fyrirhugaðar eru á svæðinu en áætlaður heildarkostnaður gæti numið allt að 220 milljónum. Ríflega sex hundruð manns hafa skrifað undir undirskriftalista þar sem minnisvarðanum er mótmælt. 12. maí 2025 16:00