Ronaldo gæti spilað með syni sínum Sindri Sverrisson skrifar 21. apríl 2026 23:03 Ronaldo-feðgarnir gætu látið stóran draum rætast á næstu leiktíð. Þeir ná þó tæplega að spila saman í portúgalska A-landsliðinu. Samsett/Getty Hinn 41 árs gamli Cristiano Ronaldo gæti náð að spila með syni sínum og nafna, Cristiano Ronaldo yngri, á næstu leiktíð.
Sonurinn er enn ungur en verður 16 ára í júní og þykir það efnilegur að forráðamenn sádiarabíska fótboltaliðsins Al Nassr, sem feðgarnir eru hjá, eru nú að íhuga að taka hann inn á æfingar aðalliðs félagsins frá og með næstu leiktíð. Frá þessu greinir sádiarabíski miðillinn Al Weeam sem segir að ákvörðun verði tekin í lok yfirstandandi leiktíðar. 🚨 Al Nassr are considering to bring Cristiano Ronaldo Jr with the first team in training from next season.He’s turning 16 in June and Al Nassr are closely monitoring his development + best options for his pathway.Inclusion in first squad is an option, as @alweeamnews report. pic.twitter.com/oXqnP1mXea— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) April 21, 2026 Ronaldo yngri fylgdi föður sínum til Sádi-Arabíu árið 2023 og er í unglingaakademíu Al-Nassr auk þess að hafa spilað fyrir yngri landslið Portúgals. Pabbi hans hefur lýst áhuga á að ná að spila með syni sínum en segir það þó ekki eitthvað sem hann hugsi mikið um eða telji nauðsynlegt. Afar sjaldgæft er að feðgar nái að spila saman hjá atvinnumannaliði en um það eru þó dæmi á borð við það þegar Rivaldo spilaði með syni sínum og Henrik Larsson með syni sínum. Ronaldo eldri er með samning við Al Nassr sem gildir til sumarsins 2027 og forráðamenn félagsins vilja ólmir að hann haldi áfram hjá félaginu nú þegar virðist styttast í fyrsta stóra titil hans með liðinu. Al Nassr er nefnilega efst í sádiarabísku úrvalsdeildinni með 76 stig, þegar fimm umferðir eru eftir, eða átta stigum á undan Al-Hilal sem kemur næst en á leik til góða.
Sádiarabíski boltinn Fótbolti Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Scholes kallar Arsenal „f-g leiðinlegt lið“ Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Sjá meira