Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 21. apríl 2026 10:47 Karl minntist móður sinnar með hlýju. Hannah McKay - WPA Pool/Getty Images Elísabet II hefði orðið hundrað ára í dag. Karl Bretakonungur minntist móður sinnar, af þessu tilefni, með ávarpi til bresku þjóðarinnar í dag. Hann segir að móðir sín hefði haft miklar áhyggjur af stöðu heimsmála en hún hafi haft óbilandi trú á því að gæskan myndi alltaf sigra að lokum.
Karl ávarpaði þjóðina í hjartnæmu myndbandsávarpi. Karl sagðist telja víst að margt sem gengur á í veröldinni núna hefði lagst þungt á móður sína væri hún enn á meðal vor en sjálfur finndi hann hughreystingu í óbilandi trú móður sinnar á að gæskan myndi alltaf sigra að lokum. Elísabet var 96 ára gömul þegar hún fékk hægt andlát að heimili sínu í Balmoral-kastala þann 8. september 2022 eftir að hafa verið, lengst allra, höfðingi þjóðar sinnar í sjötíu ár. „Mig grunar að margt við þá tíma sem við nú lifum á, kynni að hafa valdið henni miklum áhyggjum, en ég sæki styrk í þá trú hennar að gæskan muni ávallt sigra og að bjartari sólarupprás sé aldrei langt undan,“ sagði konungurinn meðal annars. Ávarp Karls var tekið upp í bókasafni Balmoral kastala í fyrri hluta apríl, hann lagði áherslu á að Elísabetar ætti að minnast fyrir framlag hennar og að hún hafi lifað góðu lífi, frekar en að einblínt yrði á söknuð. „Hennar nær aldarlanga valdatíð einkenndist af ótrúlegum breytingum en samt, með hverjum áratug sem leið, í gegnum hverja umbreytingu, var hún ávallt stöðug, staðföst og algjörlega helguð fólkinu sem hún þjónaði.“
Bretland Kóngafólk Elísabet II Bretadrottning Andlát Elísabetar II Bretadrottningar Karl III Bretakonungur Mest lesið Uppgötvuð á götum Barcelona Lífið Hvað veistu um... Snæfellsnes? Lífið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni Lífið Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Lífið Peabo Bryson er látinn Tónlist Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Lífið Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Valin versti ljósmyndari heims Lífið Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Lífið Fleiri fréttir Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Sjá meira