Lesblindir og tæki skólanna Guðmundur S. Johnsen skrifar 21. apríl 2026 09:45 Þeir sem búa við lesblindu hafa þurft að upplifa hlutina talsvert öðruvísi en aðrir á skólagöngu sinni. Þrátt fyrir meiri þekkingu á því hvað felst í lesblindu þá er margt sem hefur ekki breyst hjá lesblindum. Enn er mikið verk óunnið við að fá skólakerfið til að horfast í augu við þarfir lesblindra nemenda svo að þeir geti notið þeirra stöðu sem þeim ber samkvæmt lögum um skólahald. Ég hef í mörg ár kallað eftir því að lesblindir fái tæki sem þeir geta notað til að þess að mennta sig. Í þeim tilgangi hef ég farið á fundi ráðherra og Menntamálastofnunar og í rauninni reynt að hitta skólafólk út um allan bæ í þeirri viðleitni að fá kerfið til að bregðast við. Ég hef ekki komið tómhentur á þessa fundi heldur reynt að tala fyrir skynsamlegum lausnum. Ég hef reynt að benda á þau verkfæri sem eru nú þegar til staðar og geta auðveldað lesblindum nám. Það vita það kannski ekki allir að slík verkfæri eru til og notuð með góðum árangri víða um heim. Skóli fyrir raunverulegan fjölbreytileika En það getur verið erfitt að fá skólafólk og skólayfirvöld til að skilja að menntun má meðtaka með nýstárlegum og skapandi hætti sem gæti gerbreytt aðstæðum lesblindra. Því miður rekumst við sem tölum þannig á vegg. Kerfið vinnur eins og það megi aðeins bera fram menntun með köldum texta og kannski í besta falli nokkrum myndum. Annað sé ekki í boði eða yfirhöfuð sæmandi virðulegu skólakerfi þar sem bókin er stundum aðalatriðið en ekki menntunin sjálf. Við hjá Félagi lesblindra á Íslandi viljum skóla sem tekur mið af fjölbreytileika. Skóla sem viðurkennir að börn eru ólík, hafa mismunandi styrkleika, fara ólíkar leiðir við að læra og búa yfir margvíslegri og mismunandi hæfni. Það er einfaldlega ekki hægt að troða öllum í sömu skóstærðina. Lokaðir í gömlu textatækninni Staðreyndin er sú að menntakerfið er í raun og veru lokað inni í hinni gömlu textatækni, sem vissulega er mikilvæg, og hana skulu allir meðtaka hvort sem þeir geta það eða ekki. Þetta er sá veruleiki sem lesblindir standa frammi fyrir þó að menn tali eins og það eigi og skuli taka tillit til þarfa lesblindra. Þegar á reynir er textinn eina boðlega tækið í hinni samræmdu skólastefnu og það gerir ekkert mjög mikið fyrir lesblinda. Í dag háttar svo til að komnar eru aðrar leiðir sem gera mönnum kleift með hjálp stafrænnar tækni að breyta texta í upplestur og upplestri í texta. Þetta er bylting og segja má að þessi tækni gefi okkur möguleika á því að lesa með eyrunum! Við lesblindir spyrjum því hvort sú menntun sem fæst með þeim hætti sé eitthvað verri en sú sem fæst með lestri? Nytsamur búnaður Félag lesblindra á Íslandi (FLÍ) hefur í öllu sínu starfi lagt mikla áherslu á að kynna og nýta nýja tækni sem getur gagnast lesblindum í leik og starfi. FLÍ hefur lagt sig sérstaklega eftir að finna búnað sem getur nýst skólakerfinu og þar með lesblindum. ReadSpeaker TextAid er vefbundinn texta-í-tal (text-to-speech, TTS) hugbúnaður sem er hannaður til að aðstoða notendur, sérstaklega þá sem eiga við lestrarerfiðleika að stríða, eins og lesblindu, eða þá sem eru að læra nýtt tungumál við að bæta lestrar- og skriftarfærni sína. FLÍ telur að hér sé um mjög nytsaman búnað að ræða en félagið hefur gert rannsókn á honum og tekið hann út. FLÍ hefur kynnt ReadSpeaker TextAid fyrir skólastjórnendum og kennurum þannig að þeim er vel kunnugt um möguleika búnaðarins. Félag lesblindra á Íslandi berst fyrir hagsmunum lesblindra á Íslandi. Félagið vinnur að fræðslu, stuðningi og réttindabaráttu, auk þess að bjóða upp á námskeið og ráðgjöf og reynir að standa fyrir samfélagslegri vitundarvakningu um stöðu lesblindra, meðal annars með því að styðja við og ýta undir rannsóknir. Félagið er einnig hluti af Samtökum lesblindra á Norðurlöndum og hefur þannig aðgang að reynslu og þekkingu kollega sinna þar. Höfundur er formaður Félags lesblindra á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur S. Johnsen Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar