Tim Cook stígur til hliðar Samúel Karl Ólason skrifar 20. apríl 2026 21:16 Fimmtán ár eru liðin frá því Tim Cook tók við keflinu af hinum víðfræga Steve Jobs. Getty/Kimberly White, Corbis Tim Cook, forstjóri tæknirisans Apple, mun stíga til hliðar úr starfi sínu seinna á þessu ári og þess í stað verða stjórnarformaður. Cook hefur stjórnað Apple frá því hann tók við starfinu af Steve Jobs, skömmu fyrir andlát hans, árið 2011.
John Ternus, einn deildarstjóra fyrirtækisins, mun taka við sem forstjóri og einnig taka sæti í stjórn fyrirtækisins. Breytingarnar munu eiga sér stað þann 1. september næstkomandi. Apple er eitt verðmætasta fyrirtæki heims en frá því Cook tók við sem forstjóri, fyrir um fimmtán árum síðan, hefur virði Apple aukist um einhver 2.400 prósent, samkvæmt frétt CNBC, en við lok markaða í dag var það metið á rétt rúma fjóra billjóna dala. Það samsvarar um 487 billjónum króna (tólf núll). Til samanburðar má benda á það að landsframleiðsla Íslands árið 2025 var tæplega fimm billjónir króna. Cook er sagður hafa hagnast um 74,6 milljónir dala í fyrra, þar af um þrjár milljónir í laun og fjölda milljóna í hagnað af hlutabréfum. Forbes metur virði hans á tvo milljarða dala, um 244 milljarða króna. Í yfirlýsingu segir Cook að það hafi verið gífurleg forréttindi að stjórna fyrirtækinu, sem hann elski mjög mikið. Hann segist þakklátur fyrir að hafa fengið að starfa með svo frábæru fólki í gegnum árin og segir þar að auki að Ternus sé rétti maðurinn til að taka við keflinu. Ternus segist sömuleiðis þakklátur fyrir tækifærið til að stjórna Apple, fyrirtæki sem hann hafi unnið hjá nánast allan sinn feril. Hann segist heppinn að hafa haft bæði Jobs og Cook sem lærifeður og segist fullur jákvæðni um framtíðina.
Apple Bandaríkin Mest lesið Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Neytendur Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Ævintýralegt líf: Fjárfestirinn bankaði á gluggann á garðkofanum þar sem hann bjó Atvinnulíf Eldsneytissparnaður með Mobil Delvac Kynningar Sjálfskaparvíti Venesúela: Sósíalíska draumaríkið sem kollvarpaðist í martröð Viðskipti erlent Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Fleiri fréttir Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira