Fundu loks arftaka eftir að Arnór samdi við HSÍ Sindri Sverrisson skrifar 20. apríl 2026 12:00 Nikolaj Jacobsen hefur misst afar sigursælan aðstoðarþjálfara en nú er arftakinn fundinn. Getty/Stuart Franklin Nú er orðið ljóst hver verður Nikolaj Jacobsen til aðstoðar með Evrópu- og Ólympíumeistara Danmerkur í handbolta karla næstu árin.
Arnór Atlason var einn þeirra sem danska sambandið var með í sigtinu, eftir að ljóst varð að Henrik Kronborg myndi hætta sem aðstoðarþjálfari danska landsliðsins. Kronborg hafði farið á 14 stórmót og ákvað að hætta eftir Evrópumeistaratitilinn í janúar. Samkvæmt frétt Handkastsins í lok mars þá hafði danska sambandið mikinn áhuga á að ráða Arnór sem þjálfað hefur í Danmörku um árabil og getið sér gott orð. Samningur Arnórs, sem verið hefur aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins síðustu ár, við HSÍ var þá að renna út og óvissa um framhaldið. Á dögunum var hins vegar tilkynnt að Arnór hefði skrifað undir framlengingu við HSÍ og hann mun því áfram aðstoða Snorra Stein Guðjónsson næstu árin. Danir réðu þess í stað Henrik Møllgaard sem aðstoðarlandsliðsþjálfara. Hann tekur við í september og er ráðinn fram yfir Ólympíuleikana í Los Angeles sumarið 2028 en verður einnig áfram aðstoðarþjálfari franska stórliðsins PSG. Møllgaard lék á sínum tíma 230 landsleiki fyrir Danmörku og varð meðal annars tvisvar Ólympíumeistari og fjórum sinnum heimsmeistari. Henrik Möllgaard er einnig aðstoðarþjálfari PSG.Getty/Tom Weller „Ég er virkilega ánægður með að Henrik Møllgaard hafi sagt já við starfinu. Hann er maður sem passar vel í hópinn og er nær leikmönnum í aldri. Svo er hann ótrúlega vel liðinn hjá bæði mér og leikmönnum. Á sama tíma græðum við mikið á reynslu hans af landsleikjum og stórmótum,“ sagði Jakobsen í fréttatilkynningu, ánægður með sinn nýja aðstoðarmann.
Handbolti Danski handboltinn Mest lesið Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Landsliðskona í Val Handbolti „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Fleiri fréttir Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina „Takk fyrir mig körfubolti“ Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Landsliðskona í Val Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Pablo Bertone aftur í Val Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Keflavík heldur áfram að styrkja sig Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Myndi taka kúlu fyrir Infantino Algjört risastökk Ólivers á heimslistanum Baleba færist nær United Mun Guðmundur reisa Holland við? Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði“ „Fann í líkama, hjarta og sál að nú væri komið gott“ Sjá meira