Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Jón Þór Stefánsson skrifar 18. apríl 2026 20:44 Landsréttur úrskurðaði manninn í gæsluvarðhald. Vísir/Viktor Freyr Kona óttaðist um líf sitt og taldi að eiginmaður hennar myndi drepa hana. Hún er metin í mjög viðkvæmri stöðu af lögreglu. Eiginmaðurinn hefur verið ákærður.
Þetta kemur fram í úrskurði Landsréttar sem féllst á að hann skyldi sæta gæsluvarðhaldi í mars- og aprílmánuði. Í úrskurðinum er fjölda meintra brota mannsins lýst, en þau elstu eru frá því í byrjun árs 2024 og þau nýlegustu frá janúar síðastliðnum. Maðurinn er til að mynda grunaður um að tengjast því þegar eldur kviknaði í íbúð sem konan hafði til umráða í febrúar 2024. En fram kemur að fyrr sama dag og eldurinn kom upp hafi lögregla vísað manninum á brott eftir að hafa unnið skemmdir á íbúðinni og innanstokksmunum hennar. Að kveikja í vegabréfinu þegar lögreglan braust inn Tveimur mánuðum síðar barst lögreglu tilkynning frá leigubílstjóra að umrædd kona væri stödd hjá honum, alslaus. Sagði hún að maðurinn hafi tekið af henni veski og lykla og slegið hana í andlitið. Í desembermánuði ári síðar hafði konan samband við lögreglu og kvað manninn hafa hótað sér lífláti. Hún sagði hann hafa sparkað fast í mjóbak hennar. Maðurinn var handtekinn á lögreglustöðinni mun hann hafa hótað að drepa lögreglumann. Lögreglu barst tilkynning um heimilisofbeldi tveimur dögum síðar. Þegar lögreglu bar að garði neitaði maðurinn að opna fyrir henni og meinaði konunni að nálgast lögregluna. Á endanum sparkaði lögregla upp hurðinni til að handtaka hann, en þá mun hún hafa komið að honum að kveikja í vegabréfi sínu. Maðurinn er erlendur ríkisborgari sem var synjað um vernd árið 2024. Hann giftist síðan konunni og fékk dvalarleyfi á grundvelli hjónabands þeirra. „Ég mun drepa þessa eiginkonu“ Eftir síðastnefnda atvikið var manninum gert að sæta nálgunarbanni og brottvísað af heimili sínu. Minna en mánuði síðar, í janúar síðastliðnum, barst lögreglu tilkynning frá leigubílstjóra sem sagðist hafa verið að aka umræddu pari þar sem maðurinn hafi hent konunni úr bílnum og svo beitt hana ítrekuðu og alvarlegu ofbeldi. Maðurinn var handtekinn en konan hlaut áverka víðs vegar um höfuð sitt. Þegar lögreglan var að færa manninn í fangaklefa vegna málsins mun hann hafa öskrað: „I will kill this wife. I will fire this whore“, eða „Ég mun drepa þessa eiginkonu. Ég mun reka þessa hóru.“ Þá kemur fram að maðurinn hafi hring ítrekað á meðan á nálgunarbanninu stóð, meðal annars úr fangelsinu.
Lögreglumál Dómsmál Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira