Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Hópur formanna fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar 18. apríl 2026 12:02 Formenn, stjórnar- og trúnaðarmenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu gegna ákveðnu hlutverki í íslensku samfélagi. Þeir eru kjörnir fulltrúar starfsfólks, raddir þeirra sem standa vaktina allan sólarhringinn og halda uppi einu mikilvægasta kerfi samfélagsins. Þetta hlutverk er ekki tilviljun. Það er byggt á lýðræðislegu umboði. Félagsfólk velur sér fulltrúa til að tala sínu máli, benda á það sem miður fer og þrýsta á umbætur. Í heilbrigðisþjónustu, þar sem álag er mikið og ákvarðanir hafa bein áhrif á líf og heilsu fólks, er þessi rödd ekki bara mikilvæg, hún er ómissandi. Í íslenskum lögum er skýrt kveðið á um réttindi stéttarfélaga og fulltrúa þeirra. Samkvæmt lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna er viðurkennt hlutverk stéttarfélaga í að gæta hagsmuna félagsmanna og eiga í samskiptum við opinber yfirvöld. Enn fremur tryggja lög nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur að óheimilt sé að segja starfsmanni upp eða hóta uppsögn vegna skoðana hans eða þátttöku í stéttarfélagsstarfi. Þessi vernd er grunnforsenda þess að starfsfólk geti tjáð sig án ótta. Lagaramminn er ekki formsatriði. Hann er hornsteinn þess að hægt sé að reka opna og heilbrigða umræðu um starfsskilyrði, öryggi sjúklinga og þróun þjónustunnar. Án slíkrar verndar myndi þagna sú rödd sem þekkir kerfið best, rödd starfsfólksins sjálfs. Í litlu vinnuhagkerfi eins og á Íslandi er þessi vernd þeim mun mikilvægari. Á mörgum sérsviðum heilbrigðisþjónustunnar eru vinnustaðir fáir og möguleikar starfsfólks til að færa sig um set því verulegar skertir. Ef einstaklingur missir starf sitt getur það í raun þýtt að hann missi möguleikann á að starfa áfram í sinni grein innanlands. Slíkar aðstæður skapa raunverulega hættu á þöggun, ekki með beinum fyrirmælum, heldur með ótta. Það skiptir öllu máli að þeir sem hafa tekið að sér hlutverk formanna, stjórnarmanna og trúnaðarmanna njóti raunverulegrar verndar, ekki bara á tyllidögum, heldur í framkvæmd og reynd. Það þarf að vera ljóst að gagnrýni, fagleg ábending og opin umræða er ekki ástæða til refsinga, heldur forsenda umbóta. Stjórnendur í heilbrigðisþjónustu bera mikla ábyrgð. Aðhald er ekki ógn, það er hluti af heilbrigðu stjórnkerfi. Sterkt samtal milli starfsfólks og stjórnenda leiðir til betri ákvarðana, meiri fagmennsku og að lokum betri þjónustu við þau sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda. Saga stéttarfélaga, bæði hérlendis og erlendis, sýnir að framfarir í vinnuumhverfi, öryggi og réttindum hafa ekki orðið til af sjálfu sér. Þær hafa orðið til vegna þess að einhver þorði að tala. Vegna þess að einhver hafði umboð og vernd til að standa með sínu fólki. Við eigum að standa vörð um það umboð. Ef við viljum betri heilbrigðisþjónustu verðum við að tryggja að þeir sem tala fyrir hönd hennar geti gert það án ótta. Það er ekki aðeins réttlætismál gagnvart starfsfólki, það er grundvallarforsenda þess að samfélagið allt njóti góðs af. Eva Hauksdóttir, formaður Félags lífeindafræðingaHelga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga Gunnlaugur Már Briem, Formaður Félags sjúkraþjálfara Katrín Sigurðadóttir, formaður Félags geislafræðingaLaufey Elísabet Gissuradóttir, formaður Þroskaþjálfafélags ÍslandsPétur Maack formaður, Sálfræðingafélags ÍslandsSandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags ÍslandsSigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir, formaður Lyfjafræðingafélags ÍslandsSteinunn Bergmann, formaður Félagsráðgjafafélags ÍslandsSteinunn Þórðadóttir, formaður Læknafélags ÍslandsUnnur Berglind Friðriksdóttir, formaður Ljósmæðrafélags ÍslandsÞóra Leósdóttir, formaður Iðjuþjálfafélags Íslands Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Stéttarfélög Mest lesið Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Skoðun Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun