Atvinnulíf

Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Baldur Rafn Gylfason, hárgreiðslumeistari og eigandi bpro heildsölu, hefur alltaf haft áhuga á fjölmiðlum og leiklist og átti því ekkert erfitt með að svara léttri spurningu um hver hann væri ef hann væri frægur leikari eða poppari. Því þá væri hann hreinlega þjóðargersemi! 
Baldur Rafn Gylfason, hárgreiðslumeistari og eigandi bpro heildsölu, hefur alltaf haft áhuga á fjölmiðlum og leiklist og átti því ekkert erfitt með að svara léttri spurningu um hver hann væri ef hann væri frægur leikari eða poppari. Því þá væri hann hreinlega þjóðargersemi!  Vísir/Vilhelm

Baldur Rafn Gylfason, hárgreiðslumeistari og eigandi bpro heildsölu, er vaknaður eldsnemma á morgnana og rýkur þá beint af stað á æfingu. Viðurkennir þó að fara of seint að sofa á kvöldin og væri alveg til í að festa það betur í rútínunni að ná að anda djúpt, hugleiða og rækta þakklætið á hverjum degi.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fólk fer að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Ég vakna yfirleitt klukkan 05:30 og snúsa nánast aldrei.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Ég fer beint af stað á æfingu. Ég klára um 07:20 og tek svo við morgninum heima – vek krakkana og kem öllu í gang. Við skiptum þessu auðvitað á milli okkar hjónanna þannig að þetta rúllar vel.

Í millitíðinni næ ég mér yfirleitt í einn espresso, vítamín og Shilajit – þetta er mitt morgun-combo. Mig langar líka að taka smá stund á hverjum morgni til að hugleiða, anda djúpt og vera þakklátur fyrir lífið, en það mætti festast betur í rútínu. Það er klárlega á planinu.“

Ef þú værir frægur poppari eða leikari, hver værir þú þá?

„Ég myndi líklega stefna á að vera einfaldlega farsæll í því sem ég tæki mér fyrir hendur – helst þannig að maður væri talinn einhvers konar þjóðargersemi.

Ég hef alltaf haft áhuga á fjölmiðlum og jafnvel leiklist, þannig að þetta er ekki langt frá mér. 

Ef ég þekki mig rétt væri þetta allt eða ekkert – annaðhvort að fara alla leið eða sleppa því.“

Baldur er með bullandi ADHD og segist því þurfa að leggja mikla áherslu á skipulag svo allt gangi upp. Til þess notar hann dagatal og minnisbækur en sú leið sem hefur alltaf virkað best fyrir hann er gamla góða leiðin að skrifa allt niður á blað.Vísir/Vilhelm

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Ég er með bullandi ADHD og þarf því að vera mjög skipulagður svo allt gangi upp. Ég set allt í dagatal og er alltaf með minnisbækur – yfirleitt fleiri en eina í gangi. Ég skrifa niður það sem þarf að gera og fer reglulega yfir listann.

Ég hef prófað ýmis skipulagskerfi en kem alltaf aftur að penna og pappír. Það hentar mér best. 

Svo snýst dagurinn líka um að halda utan um marga hluti í einu, þannig að skipulagið þarf að vera einfalt og virka í raun.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Planið er alltaf að vera kominn upp í rúm um tíu eða hálf ellefu – en það gengur sjaldan. Með heimili, krakka og hund og allt sem því fylgir þá lengist dagurinn oft.

Raunin er sú að ég fer yfirleitt að sofa um ellefu til tólf, stundum seinna. Maður dettur líka stundum í tölvupóst eða skilaboð sem tefja þetta enn frekar.

Ég mætti klárlega sofa meira – en þetta er stöðug vinna, bæði í rútínu og bara í lífinu almennt.“


Tengdar fréttir

Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér

Lilja Kristín Birgisdóttir, markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum, viðurkennir að fara alltof seint að sofa. Hundurinn sér síðan um að koma henni fram úr um sex leytið. Synirnir eru ekkert alltof hrifnir af því að foreldrarnir byrji daginn með dansi.

Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn

Fannar Örn Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Terra Eininga og Öryggisgirðinga, segir það alltof gott að snúsa á morgnana. Reglulega reynir hann þó að fara í átak, vakna klukkan 06.30 og skella sér í ræktina áður en hann fer að vinna. Síðan hefst snúsið á ný.

„Ég var geggjuð skvísa, en það er ekki mér að þakka“

Erla Ásgeirsdóttir, stjórnarkona og tilvonandi frumkvöðull, segir nátthrafnana á heimilinu oft halda vöku fyrir þeim hjónum. En þarf þó að viðurkenna á sig að vaka stundum of lengi við að horfa á sjónvarpið uppi í rúmi eða hlusta á Storytel.

Það getur allt gerst ef forstjórinn vakir fram yfir klukkan tíu

Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar, er snúsari og hæg í gang á morgnana en mjög góð í að segja brandara. Oft sofnar hún með dóttur sinni rétt fyrir klukkan tíu á kvöldin, en í þau skipti sem hún nær að vaka fram yfir þann tíma getur allt gerst: Kvöldin eru besti tíminn!

„Annar er létt geggjaður og skemmtilegur og hinn alveg grjótharður“

Brynjar Valsteinsson, framkvæmdastjóri Gosfélagsins, segir morgnana frekar einfalda rútínu en viðurkennir að fara of seint að sofa. Þá kalli á að horfa á íþróttir eða ókláraðan þátt. Hetjur úr gömlum bíómyndum eru annars vegar einn grjótharður og hins vegar einn létt geggjaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×