Börn með málþroskaraskanir geta ekki beðið endalaust Hildur Jónsdóttir skrifar 18. apríl 2026 10:30 „Ekkert barn á að þurfa að bíða eftir talmeinafræðingi árum saman” Þessi orð féllu í Kastljósi þann 14. janúar síðastliðinn. Þau hljóma vel - og líklega erum við öll sammála þeim. En orð duga skammt þegar þeim fylgja ekki gjörðir. Enn verr þegar þau týnast á leiðinni frá sjónvarpsstúdíói yfir í raunveruleika barna og fjölskyldna. Sem móðir þriggja drengja með málþroskaröskun þekki ég talmeinafræðiþjónustuna og kerfið í kringum hana of vel. Ég þekki biðlistana, þar sem tíminn er afstæður eins og þvottavélamínútur. Ég þekki símtölin, áminningarnar, forfallalistana og hlaupin þegar stakur tími losnar. Ég þekki líka þá stöðugu baráttu að reyna allt mögulegt til að tryggja börnunum mínum þá þjónustu sem þau eiga rétt á. Þegar fjórða barnið mitt fæddist sá ég loks glufu. Hjá Talþjálfun Vesturlands var hægt að sækja um án tilvísunar, með tilliti til fjölskyldusögu. Dóttir mín var sex mánaða gömul þegar hún var sett á biðlista, með þeirri von að hún fengi mögulega aðstoð um fjögurra ára aldur ef þörf væri á. Því biðin var jú um fjögur ár. Þetta var snemma árs 2023. Þá höfðu talmeinafræðingar sem starfa fyrir Sjúkratryggingar Íslands verið samningslausir í eitt ár og um 3.700 börn voru á biðlista. Nú er árið 2026. Dóttir mín verður fjögurra ára í sumar, en hún er ekki á neinum biðlista lengur. Talþjálfun Vesturlands er að loka. Börnin sem þar voru í þjálfun detta út – ásamt nokkrum hundruðum barna sem voru á biðlista. Eldri bróðir hennar var á sömu stofu áður en talmeinafræðingurinn sem hann hitti fór í fæðingarorlof. Útséð er að hún snúi ekki aftur á stofuna og hinn talmeinafræðingurinn hverfur til annarra starfa. Ég lái þeim það ekki, laun sjálfstæðra talmeinafræðinga hafa ekki fylgt launum sambærilegra stétta í mörg ár. Árið er 2026. Um 5.000 börn eru nú á biðlista eftir talmeinafræðiþjónustu. Samt hefur Sjúkratryggingum Íslands enn ekki tekist að semja við talmeinafræðinga. Á meðan rúlla biðlistarnir áfram og ráðherrar, þar á meðal Inga Sæland, láta falla orð sem hljóma vel ein og sér. Stjórnvöld verða að axla ábyrgð. Það þarf að: semja tafarlaust við talmeinafræðinga, tryggja stéttinni sanngjörn laun og starfsumhverfi, og setja hagsmuni barna í forgang – ekki aðeins í orði, heldur í verki. Höfundur er áhyggjufullt foreldri og grunnskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Mest lesið Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson skrifar Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir skrifar Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
„
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar