„Ef við töpum fyrir Arsenal þá er þetta búið“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. apríl 2026 22:02 Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, gerir sér vel grein fyrir mikilvægi leiksins á sunnudaginn. Getty/Alex Livesey Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, lýsti því yfir að titilbaráttan væri „búin“ ef Manchester City tapar fyrir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Tvö efstu liðin í ensku úrvalsdeildinni mætast á Etihad-leikvanginum á sunnudag í leik sem hefur verið kallaður úrslitaleikur um titilinn. Og Guardiola, en lið hans hefur leik sex stigum á eftir Arsenal með leik til góða, hefur sagt að Arsenal verði meistarar ef þeir vinna. „Ef við töpum fyrir Arsenal þá er þetta búið. Þeir eru svo sterkir á öllum sviðum. Í einvígjum, líkamlega, og ef þú leyfir þeim að byggja upp spil án þess að vera árásargjarn, þá byggja þeir upp gott spil,“ sagði Guardiola. „Þess vegna eru þeir þar sem þeir eru, á toppi ensku úrvalsdeildarinnar allt tímabilið og þess vegna er ég stoltur af því að vera þar og keppa við þá,“ sagði Guardiola. Sigur City myndi koma liði Guardiola þremur stigum á eftir Arsenal. Þeir gætu síðan komist á toppinn ef þeir sigra Burnley á Turf Moor á miðvikudag. Jafnvel þótt Arsenal tapi á sunnudag fullyrðir Guardiola að City verði ekki endilega sigurstranglegast til að lyfta bikarnum vegna „hræðilegrar“ leikjadagskrár þeirra fyrir lok tímabilsins. „Leikjadagskráin okkar er hræðileg með útileikjum gegn Everton og Bournemouth og svo Aston Villa í síðasta leiknum heima. Burnley og Crystal Palace og Brentford á heimavelli. Crystal Palace og Aston Villa í Evrópukeppni, þannig að það er enn margt eftir,“ sagði Guardiola. Guardiola hefur fengið góðar fréttir fyrir leikinn gegn Arsenal þar sem Nico O'Reilly er leikfær eftir að hafa jafnað sig af meiðslum aftan í læri. O'Reilly var hetjan í úrslitaleik enska deildabikarsins þar sem hann skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri gegn liði Mikel Arteta. Guardiola býst þó við því að fyrrverandi aðstoðarmaður hans muni breyta leikáætlun sinni til að forðast endurtekningu á úrslitunum frá Wembley. „Ef við spilum eins og við gerðum í 95 mínútur [eins og á Wembley] og þeir gera það sem þeir gerðu, þá munum við vinna. En fótbolti er óútreiknanlegur. Ég þekki Mikel svolítið, þeir munu breyta einhverju og við verðum að vera viðbúnir,“ sagði Guardiola.
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Sjá meira