Cruise tekur á loft í þriðja sinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 17. apríl 2026 10:18 Tom Cruise mun bregða sér í hlutverk Pete „Maverick“ Mitchell í þriðja sinn í Top Gun 3. Herþotuflugmaðurinn Pete „Maverick“ Mitchell tekur á loft á ný því kvikmyndastúdíóið Paramount hefur tilkynnt að Hollywood-stjarnan Tom Cruise verði með í hasarmyndinni Top Gun 3 sem er komin í framleiðslu.
Paramount tilkynnti þessar fregnir á kvikmyndaráðstefnunni CinemaCon í gær. Hollywood-miðillinn Variety greindi svo frá tíðindunum. Hinn 63 ára Tom Cruise er ekki sá eini sem snýr aftur í þriðju myndinni, framleiðandinn Jerry Bruckheimer, sem framleiddi báðar fyrri myndanna, verður einnig með. Hins vegar liggur ekki fyrir hvort Joseph Kosinski sem leikstýrði Top Gun: Maverick (2022) verði með. Framhaldsmyndin hefur verið í framleiðslu síðan 2024 en tilkynningin er fyrsta merkið um að hún sé raunverulega á leiðinni. Bruckheimer sagði fyrir tveimur árum að þeir hefðu kynnt verkefnið fyrir Cruise en hann væri svo upptekinn að allt þyrfti að koma í ljós. „Við erum að hugsa um og ræða alls konar ólíkar sögur, hvað við gætum gert og hvað sé mögulegt. Það tók mig 35 ár að átta mig á Top Gun: Maverick. Þannig að við erum að vinna í öllum þessum hlutum,“ sagði Cruise um þriðju myndina í fyrra. Top Gun kom út árið 1986 í leikstjórn Tony Scott með Tom Cruise, Val Kilmer og Kelly McGillis í aðalhlutverkum og var vinsælasta mynd ársins þó viðtökur gagnrýnenda væru dræmari. Framhaldsmyndin Top Gun: Maverick kom út 36 árum síðar í leikstjórn Joseph Kosinski með Cruise í aðalhlutverkinu á ný. Val Kilmer birtist sömuleiðis í litlu hlutverki í sinni síðustu mynd en annars var leikhópurinn fullur af upprennandi stjörnum á borð við Glen Powell, Lewis Pullman, Monica Barbaro og Miles Teller. Top Gun: Maverick var risahittari og halaði inn einum og hálfum milljarði Bandaríkjadala á heimsvísu en bíóin voru á þeim tíma enn að jafna sig á Covid-faraldrinum. Paramount vilja væntanlega reyna að endurtaka leikinn með þriðju myndinni.
Hollywood Bíó og sjónvarp Bandaríkin Tengdar fréttir Gamli er (ekki) alveg með'etta Þegar best lætur líður manni eins og maður þeysist eftir brautinni á formúlubíl með öllum þeim hraða, hávæða og spennu sem því fylgir. Þegar farið er af brautinni líður manni eins maður sé að horfa á illa leikna auglýsingu með ómerkilegum persónum og klisjukenndu handriti. 11. júlí 2025 08:32 Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Val Kilmer var heittrúaður method-leikari sem sökkti sér ofan í hlutverk sín en fékk líka orð á sig fyrir að vera dyntótt dramdrottning og erfiður í samskiptum. Í tilefni andláts Vals Kilmer hefur Vísir tekið saman tíu bestu og tíu verstu myndir leikarans. 9. apríl 2025 08:30 Mest lesið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Harry Styles setti heimsmet Lífið Það allra besta að gráta í gufu Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Geirvörtur og latex vekja athygli í París Tíska og hönnun Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Fleiri fréttir Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Danny Glover með Alzheimer Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Michael Byrne er látinn Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar James Burrows látinn Laufey Lín er mætt til Springfield Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Margaret Kerry er látin Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Harbour rýfur þögnina Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Sjá meira
Gamli er (ekki) alveg með'etta Þegar best lætur líður manni eins og maður þeysist eftir brautinni á formúlubíl með öllum þeim hraða, hávæða og spennu sem því fylgir. Þegar farið er af brautinni líður manni eins maður sé að horfa á illa leikna auglýsingu með ómerkilegum persónum og klisjukenndu handriti. 11. júlí 2025 08:32
Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Val Kilmer var heittrúaður method-leikari sem sökkti sér ofan í hlutverk sín en fékk líka orð á sig fyrir að vera dyntótt dramdrottning og erfiður í samskiptum. Í tilefni andláts Vals Kilmer hefur Vísir tekið saman tíu bestu og tíu verstu myndir leikarans. 9. apríl 2025 08:30