Átti Camavinga skilið spjald? „Ekki eins og hann taki boltann og negli honum í burtu“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 16. apríl 2026 09:31 Camavinga rak upp stór augu þegar hann sá rauða spjaldið fara á loft. Harry Langer/DeFodi Images/DeFodi via Getty Images Eduardo Camavinga átti eftirminnilega lélega innkoma fyrir Real Madrid í leik gegn Bayern Munchen í gærkvöldi. En átti franski miðjumaðurinn endilega skilið að fá rautt spjald?
Camavinga kom inn af bekknum á 61. mínútu þegar staðan var 2-3 fyrir Real Madrid og 4-4 í einvíginu. Á 78. mínútu fékk Camavinga gult spjald fyrir brot á Jamal Musiala og á 86. mínútu fékk hann sitt seinna gula spjald, þar með rautt, fyrir að afhenda boltann ekki strax eftir að hafa brotið af sér. Bayern skoraði svo tvö mörk gegn tíu leikmönnum Real og vann einvígið samanlagt 6-4. „Ég sagði það [þegar Camavinga kom inn af varamannabekknum] að hann ætti á einhvern hátt eftir að kasta þessu út um gluggann fyrir Real. Hann er bara búinn að vera alveg arfaslakur,“ sagði Albert Brynjar Ingason í Meistaradeildarmörkunum í gærkvöldi. Aron Jóhannsson kom Camavinga þá aðeins til varna og sagði seinna gula spjaldið ekki hafa verið verðskuldað. Dómarinn hefði líklega ekki áttað sig á því að þetta væri seinna gula spjaldið, annars hefði hann sleppt honum fyrir þetta smáræði. „Það er ekki eins og hann taki boltann og negli honum í burtu. Mér finnst að dómarinn eigi bara vera með smá leikskilning og segja honum að hann sé á síðasta séns.“ Albert stóð hins vegar fastur á sínu og sagði seinna gula spjaldið vera fyllilega verðskuldað. Dæmi hver fyrir sig en brotin, spjöldin og líflegar umræður Alberts og Arons um málið má sjá hér fyrir neðan. Öll mörkin úr leiknum má sjá hér. Klippa: Átti Camavinga skilið að fá rautt spjald?
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Real Madrid CF Mest lesið Biðjast afsökunar eftir að keppandi kúkaði á sig Sport Strákarnir á Saga Class en stelpurnar aftar í vélinni Sport Þórsarar höfðu betur í slagnum um Akureyri Handbolti „Þá mun ég reka mig sjálfur“ Fótbolti Markvörður KR fór ítrekað fram: „Alveg stjörnubilað að horfa á þetta“ Íslenski boltinn Ný stjarna fæðist í Heiðmörk um helgina Sport „Ef þetta hefði verið ég þá hefði ég hætt keppni“ Sport „Í raun og veru ætti ég ekki að þola hann“ Fótbolti Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Körfubolti Auknar líkur á að Ísland endi í neðstu deild Fótbolti Fleiri fréttir Mun saga Arons endurtaka sig? Sunderland vann í fyrsta Evrópuleiknum síðan 1973 Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Með fullt hús stiga eftir níu marka veislu Birta upptöku sem sannar kynþáttaníð gegn Mikael „Þá mun ég reka mig sjálfur“ Eiginkona og sonur vitni að grófri árás sjö stuðningsmanna FCK „Í raun og veru ætti ég ekki að þola hann“ „Hinna klúbbanna á Íslandi að elta þá“ Svona er hópurinn: Ísak Snær, Rúnar Alex og Arnór með Arnar kynnti nýjasta hópinn og mætti í spjall Rekinn eftir aðeins fjóra leiki í starfi Stórlaxarnir á eftir vonarstjörnu Manchester United sem vill burt Markvörður KR fór ítrekað fram: „Alveg stjörnubilað að horfa á þetta“ Auknar líkur á að Ísland endi í neðstu deild Sjáðu fyrsta mark Gabríels og flugskalla í rangt mark Mbappé og Vinicius vildu ekki sýna Ceuta stuðning Efnilegastur í Bandaríkjunum: Slær Freddy Adu við Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Real kastaði næstum frá sér sigrinum Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Haukar og Selfoss leika til úrslita Þrír Íslendingar spiluðu og fóru áfram Áfram í bikarnum eftir Íslendingaslag Coutinho og Neymar uppfylla gamlan draum Fyrrum leikmaður Tottenham til Ajax Sjá meira