Kærleikur og umburðarlyndi vinstrimanna Diljá Mist Einarsdóttir skrifar 15. apríl 2026 08:03 Á dögunum kom út skýrsla Fjölmiðlanefndar og Netvís Lýðræði og skautun – Upplifun fólks af áróðri og viðhorf til mismunandi hópa. Skýrslan byggir á niðurstöðum könnunar Maskínu sem var lögð fyrir í nóvember 2025. Eitthvað virðist hafa tafið útgáfu skýrslunnar - e.t.v. hugmyndaauðgi landsmanna við útgáfu hlaðvarpa. Líkleg afskipti af kosningum hér á landi Ýmislegt athyglisvert er að finna í skýrslunni. Meðal annars að 36,1% svarenda hafi áhyggjur af áróðri erlendra ríkja í tengslum við kosningar eða þjóðaratkvæðagreiðslur hér á landi. Ég deili þeim áhyggjum, en fyrir tveimur árum skrifaði ég einmitt pistil hér á Vísi um fyrirhuguð afskipti skrifstofu Evrópuþingsins af Evrópuþingskosningum. Þá sendi ég nýlega inn fyrirspurn á Alþingi vegna yfirlýsinga í skýrslu Evrópuþingsins um fyrirhugaðan áróður í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild hér á landi. Munurinn á hægri og vinstri Umfjöllun um ESB lýkur þó hér í bili. Skýrslan varpar nefnilega ljósi, ekki bara á viðhorf fólks til ólíkra samfélagshópa, heldur líka á viðhorf ólíkra samfélagshópa. Í skýrslunni er þannig að finna samanburð á viðhorfum tveggja hópa. Annars vegar hægrimanna og hins vegar vinstrimanna. Ég er að vísu oft tortryggin í garð flokkunar fjölmiðlamanna o.fl. á hvað hægri og vinstri þýðir og ég fann ekki í fljótu bragði á hverju skiptingin byggði í þetta sinn. Það sem fangaði athygli mína var hins vegar staðfesting á því sem ég þóttist þegar vita. Nefnilega að vinstrimenn eru upp til hópa mun minna umburðarlyndir en hægrimenn. Hafa minna umburðarlyndi fyrir skoðunum annarra. Þannig svara 39,7% hægrimanna því játandi að þeim mislíki stuðningsmenn Sósíalistaflokksins og 37,9% þeirra mislíkar stuðningsfólk Pírata. Viðhorf vinstri manna eru hins vegar þau að 62,6% þeirra mislíkar stuðningsfólk Miðflokksins, 49,8% mislíkar íhaldsmenn og 40,9% mislíkar stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins. Þegar viðhorf þessara tveggja ása til fleiri ólíkra hópa í samfélaginu eru borin saman í skýrslunni kemur sömuleiðis í ljós mun sterkari neikvæð afstaða vinstrimanna til ákveðinna hópa, hópa sem þeir „mislíkar mjög“ svo notast sé við orðalag skýrslunnar. Stærsta vandamálið við skautun Umrædd skýrsla er m.a. sögð fjalla um skautun, enda hugtakið verið mjög í deiglunni að undanförnu. Gott ef vinstrimenn eru ekki töluvert duglegri að leggja sitt af mörkum til umræðunnar um skautun. Um áhyggjur af skautun, áhyggjur af lýðræðinu. Eitt stærsta vandamálið við skautun er einmitt að fólk er ekki bara ósammála. Því hreinlega mislíkar fólk með andstæðar skoðanir. Mikilvægt skref til að vinna gegn skautun er því að stuðla að auknum kærleika og umburðarlyndi vinstrimanna. Ég hvet þá til góðra verka í þeim efnum. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Diljá Mist Einarsdóttir Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar