Verðbólgukeppni Benedikt S. Benediktsson skrifar 15. apríl 2026 07:15 Ríkisstjórnin lækkar virðisaukaskatt á eldsneyti sem væri góð hugmynd ef hún seldi hana ekki eins og vafning með undirmálslánum. Hinn 10. apríl síðastliðinn kynnti ríkisstjórnin aðgerðir til að takast á við aukna verðbólgu vegna átaka í Persaflóa (a. الخليج الفارسی). Aðgerðirnar eru í raun tvær, þ.e. annars vegar tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti sem neytendur kaupa á dælu og hins vegar fjárframlag til að styrkja uppbyggingu hleðslustöðva. Í frumvarpinu segir efnislega að á tímabilinu 1. maí til 31. ágúst verði virðisaukaskattur á eldsneyti 11% í stað 24%. Þá er beinum orðum kveðið á um að „á umræddu tímabili ber[i] söluaðilum eldsneytis að tryggja að hin tímabundna lækkun á skatthlutfalli virðisaukaskatts skili sér að fullu í endanlegu útsöluverði eldsneytis.“ Í mati á áhrifum segir m.a.: „Sé lækkuninni miðlað til fulls inn í verð til neytenda lækkar verð að öðru óbreyttu um 10,5%.“ Þá segir einnig: „Gert er ráð fyrir að bein áhrif skattalækkunarinnar á vísitölu neysluverðs verði tæplega 0,3% til lækkunar sem mun ganga til baka að gildistíma loknum í byrjun september.“ Þátttökulistinn Það er jákvætt að ríkisstjórnin stígi skref og gefi til kynna að hún ætlar að vera þátttakandi í baráttunni gegn verðbólgu. Virðisaukaskattslækkunin er nokkuð vel til þess fallin að lækka eldsneytiskostnað almennings og ætti ef vel tekst til að milda bein áhrif þróunar á alþjóðavettvangi á buddu margra landsmanna. Niðurstaðan ætti að verða mælanleg. Stuðningur við orkuskipti er aftur á móti lengri tíma mál, eins og forsætisráðherra hefur nefnt, en gæti í einhverjum mæli orðið lóð á vogarskálarnar m.t.t. orkusjálfstæðis þjóðarinnar. Mun hámarksárangur nást? Stutta svarið er já, hámarksárangur mun nást. Það segir sig nánast sjálft að muninum á 24% virðisaukaskatti á eldsneyti og 11% verður skilað út í verðlag enda samræmist annað ekki lögum um virðisaukaskatt og getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Stjórnandi sem tekur slíka áhættu verður ekki langlífur í starfi. Skatturinn hefur eftirlit með réttum skilum, virðisaukaskattsframkvæmdin er rótgróin og þó stundum kunni að skapast álitamál snúa þau afar sjaldan að svo einföldum viðskiptum sem innkaup og sala eldsneytis eru. Það er vel þekkt að fólk hefur sætt refsingu fyrir röng skil virðisaukaskatts. Áhættan af því að lækkunin skili sér ekki til neytenda er því afar lítil ef nokkur. Af þeim sökum er í raun óþarft að taka fram í lagatextanum að söluaðilum beri að skila lækkun skatthlutfallsins út í smásöluverð, það mun gerast. Látum það liggja á milli hluta enda er það ekkert endilega alltaf slæmt að löggjafinn sé skýr þegar hann lætur í ljós til hvers er ætlast, svo fremi sem hann sé skýr. Ekki að pissa í skóinn sinn heldur… Að bera í bakkafullan lækinn er þekkt orðatiltæki og getur merkt að ganga lengra en tilefni er til. Myndmálið er skýrt, einstaklingur að bera vatn í fötu út í læk. Almennt er til þess ætlast að löggjafinn passi upp á slíkt og oft eru orð eins og meðalhófsregla og gullhúðun nefnd í því sambandi. Fræðimenn nefna stundum að lögmætisregla varni því að stjórnvöld grípi til aðgerða nema þær eigi sér stoð í lögum. Eins og áður segir tryggja ákvæði virðisaukaskattslaga nú þegar að sú breyting á virðisaukaskattshlutfalli sem er boðuð með frumvarpinu muni skila sér út í smásöluverð. Í frumvarpinu er hins vegar gengið lengra. Þetta er kraftakeppni Eins og fram hefur komið er í frumvarpinu sérstaklega kveðið á um að söluaðilum eldsneytis beri að tryggja að hin tímabundna lækkun á skatthlutfalli virðisaukaskatts skili sér að fullu í endanlegu útsöluverði eldsneytis. Skatturinn hefur, eins og áður segir, eftirlit með réttri meðferð virðisaukaskatts. Fjármála- og efnahagsráðherra telur hins vegar tilefni til að bæta í og Samkeppniseftirlitinu verður gert að hafa sérstakt eftirlit með því að söluaðilar skili tímabundinni lækkun virðisaukaskatts í útsöluverð eldsneytis. Frændi minn í Bolungarvík sneri hurðarhúnum stundum aukahring því hann var svo handsterkur. Ráðherrann er líka sterkur. Ekki bara einstaklingssport Það er ekki nema von að fleiri hafi viljað taka þátt og ákveðið hafi verið að tryggja aðkomu atvinnuvegaráðherra að málinu. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að hún fái heimild til ákveða hámarksverð, hámarksálagningu eða aðra stýringu á verðlagningu eða viðskiptakjörum ef svo fer að söluaðilar eldsneytis tryggja ekki að hin tímabundna lækkun á skatthlutfalli virðisaukaskatts skili sér að fullu í endanlegu útsöluverði eldsneytis. Ég held ég hafi verið búinn að nefna annað samræmist ekki lögum um virðisaukaskatt. Hún er líka sterk. Látum […] kappið bera fegurðina ofurliði Ekki mundi ég vilja vera hurðarhúnn í dag. Til höfuð þess sem selur eldsneyti er sett eftirlit Skattsins, eftirlit Samkeppniseftirlitsins, skattsekt, stjórnvaldssekt, verðþak, framlegðarhámark og hættan á því að einum liðsmanninum detti í hug einhver önnur leið til verðstýringar eða stýringar. Allt undir kringumstæðum þar sem það er þegar ljóst að lækkunin mun skila sér út í verðlag. Einhver fræðimaðurinn hefði í góðu samkvæmi látið detta sér í hug hugtök á borð við margföld refsing en annar og óvandaðri maður látið nægja að segja jú kant meik ðis sjitt öpp. Höfundur er framkvæmdastjóri SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Benedikt S. Benediktsson Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun