Alls staðar verið að minnka áhættusækni og dirfsku hjá stjórnendum félaga
Einn stærsti einkafjárfestirinn í Sjóvá sagði afstöðu Gildis gegn tillögu að kaupréttaráætlun fyrir lykilstjórnendur félagsins, sem tekist var á um á nýlegum aðalfundi, vera „óskiljanlega“ og gagnrýndi að alls staðar sé verið að „minnka áhættusækni og dirfsku og draga tennurnar úr“ þegar reynt er að umbuna stjórnendum. Að sögn framkvæmdastjóra Gildis snýr gagnrýninn að skorti á skýrleika en sjóðurinn var eini hluthafinn sem greiddi atkvæði á móti kaupréttaráætluninni eftir breytingartillögu sem barst frá LSR.
Tengdar fréttir
Gagnrýnir umbun stjórnenda ef ávöxtun „nær að skríða“ yfir áhættulausa vexti
Stærsti hluthafi Haga var gagnrýninn á „umfang og útfærslu“ nýs kaupréttarkerfis smásölurisans og beindi þeirri spurningu til stjórnar félagsins á nýafstöðnum hluthafafundi af hverju hún teldi rétt að umbuna lykilstjórnendum með kaupréttum ef þeir næðu að skila ávöxtun sem væri vel undir ávöxtunarkröfu ríkisbréfa. Tillaga stjórnar Haga, sem er að stórum hluta í eigu lífeyrissjóða, að kaupréttarkerfi var samþykkt með nokkuð naumum meirihluta.
Reyna að nýju að koma á kaupréttarkerfi eftir andstöðu frá Gildi
Eftir að hafa mætt andstöðu frá sumum lífeyrissjóðum, einkum Gildi, við kaupréttarkerfi til handa lykilstjórnendum fyrr á árinu freista stjórnir smásölurisans Haga og fasteignafélagsins Heima þess núna að nýju að koma á slíku kerfi með breytingum frá upprunalegum tillögum, meðal annars eru vextir til leiðréttingar á nýtingaverði kaupréttanna hækkaðir nokkuð. Þá mun hámarks úthlutun kauprétta til forstjóra Haga vera helmingi minni en upphaflega var áformað.
Lífeyrissjóðir verða ekki hlutlausir fjárfestar, segir formaður Gildis
Haft hefur verið á orði að lífeyrissjóðir eigi að láta einkafjárfestum eftir að leiða þau fyrirtæki sem fjárfest er í. Stjórnarformaður Gildis segir að í ljósi þess hve umsvifamiklir lífeyrissjóðir séu á hlutabréfamarkaði hérlendis muni þeir gegna veigameira hlutverki en að vera hlutlaus fjárfestir.
Samruni stórra lífeyrissjóða kallar á spurningar um samþjöppun eignarhalds
Áform um mögulegan samruna Lífeyrissjóðs verslunarmanna og Birtu, tveir af stærstu lífeyrissjóðum landsins, ætti að leiða til þess að velt sé upp sjónarmiðum hvaða áhrif það kynni að hafa fyrir samþjöppun eignarhalds á markaði, að sögn seðlabankastjóra.