Staða Íslands í alþjóðakerfinu: Mikilvægi upplýstrar umræðu Auður Birna Stefánsdóttir, Tómas Joensen og Pia Hansson skrifa 13. apríl 2026 11:45 Á tímum hraðra og djúpstæðra breytinga í alþjóðakerfinu er brýnna en nokkru sinni fyrr að efla skilning og greiningargetu okkar á þróun varnar- og öryggismála og stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu. Fyrir smáríki eins og Ísland skiptir þetta höfuðmáli, þar sem svigrúm okkar til að móta stefnu í utanríkis- og öryggismálum ræðst að stórum hluta af því hvernig aðstæður á alþjóðavettvangi þróast og hversu vel okkur tekst að skilja og bregðast við þeirri þróun. Árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu hefur gjörbreytt öryggisumhverfi Evrópu og aukinn óstöðugleiki í tengslum við átökin í Miðausturlöndum hefur gert stöðuna enn ófyrirsjáanlegri. Á sama tíma hefur traust innan rótgróinna bandalaga veikst, þar sem ágreiningur um forgangsröðun, verkaskiptingu og viðbrögð við alþjóðlegum áskorunum hefur farið vaxandi. Spurningin er því ekki lengur aðeins hvert þessi bandalög stefna, heldur hvað tekur við ef stoðir þeirra halda áfram að veikjast. Hvernig ætlar Ísland að tryggja öryggi sitt og hagsmuni í alþjóðakerfi sem verður æ ófyrirsjáanlegra og óstöðugra? Hvernig getum við, þrátt fyrir að vera smáríki, haldið áfram að marka okkar utanríkisstefnu út frá eigin sannfæringu og staðið með þeim gildum sem við teljum ófrávíkjanleg? Öryggisáskoranir samtímans eru þó ekki eingöngu hernaðarlegs eðlis. Vaxandi tíðni náttúruhamfara, netógnir og útbreiðsla upplýsingaóreiðu kalla á víðtækari skilning á hugtakinu öryggi. Dreifing rangra eða villandi upplýsinga, oft með stuðningi erlendra aðila, getur einnig grafið undan trausti, aukið sundrung og veikt stoðir lýðræðislegra stofnana. Aukin óvissa í alþjóðakerfinu kallar á skýrari sýn, dýpri skilning og markvissari viðbrögð. Með því að fjárfesta í rannsóknum og þekkingu má skapa traustari grunn fyrir langtímastefnumótun og tryggja að Ísland sé betur í stakk búið til að takast á við þær breytingar og áskoranir sem fram undan eru. Háskólar gegna einnig lykilhlutverki sem vettvangur fyrir opna, gagnrýna og upplýsta umræðu þar sem almenningur, nemendur, fræðimenn, stjórnmálamenn og sérfræðingar geta komið saman og rætt áskoranir samtímans frá ólíkum sjónarhornum. Slík umræða stuðlar að dýpri skilningi á því hvernig Ísland getur best staðið vörð um eigin hagsmuni í óstöðugum heimi. Alþjóðamál og staða Íslands í alþjóðakerfinu verða rædd á árlegri ráðstefnu Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, utanríkisráðuneytisins og Norræna hússins í samstarfi við Félag stjórnmálafræðinga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála, þriðjudaginn 14. apríl í Norræna húsinu. Skráning á ráðstefnuna fer fram á vefsíðu Alþjóðamálastofnunar www.ams.hi.is en athygli er vakin á því að ráðstefnunni er einnig streymt á miðlum Alþjóðamálastofnunar. Auður Birna Stefánsdóttir, sérfræðingur hjá Alþjóðamálastofnun Tómas Joensen, sérfræðingur hjá Alþjóðamálastofnun Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Öryggis- og varnarmál Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar