Handbolti

Með gæsa­húð um allan líkamann í kveðjuleiknum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Katrine Lunde var 24 ár í norska landsliðinu.
Katrine Lunde var 24 ár í norska landsliðinu. getty/Jürgen Fromme

Hin 46 ára Katrine Lunde lék sinn 389. og síðasta leik fyrir norska kvennalandsliðið í handbolta í gær. Kveðjustundin var afar tilfinningaþrungin.

Noregur vann stórsigur á Slóvakíu, 38-19, í Evrópubikarnum í Kristiansand í gær.

Á 16. mínútu var Lunde, sem leikur jafnan í treyju númer sextán, tekin af velli. Leikmenn beggja liða stóðu heiðursvörð fyrir hana og klöppuðu fyrir henni og áhorfendur hylltu markvörðinn frábæra.

Lunde skokkaði í kjölfarið hring í kringum völlinn við mikinn fögnuð viðstaddra í Aqurama-höllinni.

Tár sáust á hvarmi Lunde og eftir leikinn sagðist hún hafa verið með gæsahúð um allan líkamann. Hún varði þrjú af þeim fimm skotum sem hún fékk á sig í síðasta landsleiknum.

Lunde lék sinn fyrsta landsleik 26. september 2002, þá 22 ára. Síðan bættust 388 landsleikir við ferilskrána sem er ansi glæsileg.

Lunde varð þrisvar sinnum Ólympíumeistari með norska landsliðinu, þrisvar sinnum heimsmeistari og sjö sinnum Evrópumeistari. Alls vann Lunde til 21 verðlauna með Noregi á stórmótum.

Lunde lék lengi undir stjórn Þóris Hergeirssonar sem stýrði norska landsliðinu um fimmtán ára skeið (2009-24).

Síðasta stórmót Lunde með norska landsliðinu var HM undir lok síðasta árs. Noregur, undir stjórn Ole Gjekstad, stóð þar uppi sem sigurvegari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×