Ég, glæpamaður Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar 10. apríl 2026 06:01 Í gær eftir langa bið var réttlætinu loksins fullnægt. Eftir ítarlega rannsókn lögreglu, sem fól í sér ótal vettvangsathuganir að því er virðist, afskipti af Wolt-sendlum, og vörutalningu??? Þar sem kom fram að harðsvíruðu glæpamennirnir voru með yfir 172 tegundir af hættulegum fíkniefnum, sum framleidd á Íslandi, en annað erlendis, það er greinilegt að þetta viðbjóðslega samsæri teygir anga sína um allan heim. Ég á að sjálfsögðu við sigur ríkisins, um stund í það minnsta, málinu hefur verið áfrýjað, fyrir Héraðsdómi Reykjaness gegn Vilhjálmi Ólafssyni, forsvarsmanni Smáríkisins. Vilhjálmi var gefið að sök að brjóta gegn meintu einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis á Íslandi eins og það er orðað í 1. mgr. 10. gr. Áfengislaga nr. 75/1998 en þar segir “Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hefur einkaleyfi til smásölu áfengis.” Einkaleyfið er reyndar svo heilagt að í lögunum má finna undantekningu frá því til handa framleiðenda áfengis en þeim er heimilt að selja áfengi í smásölu á framleiðslustað. Svo er reyndar stærsta áfengisverslun á landinu rekin af þýsku einkafyrirtæki á Keflavíkurflugvelli. Svo má líka kaupa áfengi í smásölu frá erlendum einkafyrirtækjum og fá sent til sín, svo lengi sem áfengið sé erlendis að því er virðist. Geggjað einkaleyfi. Hvað sem líður forsendum dómsins og hvort menn séu sammála þeim eða ekki þá er ljóst að vandamálið er í höndum löggjafans. Alþingi getur, og á að vera löngu búið að leysa þetta mál. Líkt og hefur fram komið í greinum annarra þá hafa yfir 100.000 Íslendingar valið þessa leið til að nálgast þessa löglegu neysluvöru sem Vilhjálmur er sakfelldur fyrir að selja. Þá hafa önnur fyrirtæki en Smáríkið hafið rekstur í góðri trú og veita viðskiptavinum betri þjónustu en ríkið hefur nokkurn tímann gert og tryggir fjölda fólks atvinnu, þ.á.m. mér :). Er það virkilega í takt við réttarvitund þjóðarinnar að maður sé sakfelldur fyrir að selja löglega neysluvöru á markaði sem rúmlega fjórðungur landsmanna tekur þátt í, án þess þó að hvorki kaupandinn né seljandinn hafi litið svo á að viðskiptin væru ólögleg? Það eina sem er fullkomlega skýrt í þessu máli er að það er löngu tímabært að binda enda á þetta úrelta, óskilvirka, og (skoðun höfundar) glataða fyrirkomulag sem komið var á af afturhaldsöflum árið 1915 og var mögulega góð pæling þá ég veit það ekki ég var ekki fæddur. Ég er í það minnsta haldinn þeirri byltingarkenndu hugmynd að fullorðið fólk í frjálsu landi sé treystandi til að ákveða sjálf hvar þau kaupa áfengið sitt. Ég vona innilega að löggjafinn sjái sóma sinn í því að leiðrétta þessi 111 ára gömlu mistök, binda enda á þetta óvissuástand og leyfa borgurunum einfaldlega að kaupa sitt áfengi þar sem þeim sýnist án þess að venjulegur verslunarmaður eins og ég eigi hættu á því að fara í fangelsi. Ég nenni ekki neitt að fara í fangelsi! Og svo líka nenni ég ekki að þurfa að kaupa vínið mitt af ÁTVR af því þeir selja aðallega vond vín. Höfundur er vínsali, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins, og vonandi ekki á leiðinni í fangelsi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Áfengi Netverslun með áfengi Mest lesið Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson Skoðun Stafrænt fullveldi er ekki frönsk sérviska Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðarvarnarráðið hefur verið kallað saman af minna tilefni! Davíð Bergmann skrifar Skoðun Orðspor og ímynd bíður hnekki Haukur Hinriksson skrifar Skoðun Stafrænt fullveldi er ekki frönsk sérviska Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki skrifstofa heldur framkvæmd Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar