Nýsköpun í breyttri heimsmynd Erna Björnsdóttir skrifar 10. apríl 2026 09:02 Þegar rætt er um útflutningsgreinar Íslands beinist athyglin oft að hinum hefðbundnu stoðum hagkerfisins. Heimurinn er hins vegar að taka hröðum breytingum og það sama á við um tækifæri og vöxt í útflutningi Íslands. Hugvit og tækni hafa vaxið ört á síðustu árum og eru nú að festa sig í sessi sem ein af meginstoðum íslensks útflutnings. Þar felast veruleg tækifæri fyrir framtíð íslensks efnahagslífs, enda byggir þessi grein á þekkingu, nýsköpun og lausnum sem takmarkast ekki af auðlindum með sama hætti og margar aðrar greinar. Það er því full ástæða til að horfa sérstaklega til nýrra tækifæra innan greinarinnar og jafnframt horfa stöðugt til framtíðar. Eitt þeirra sviða sem hefur vaxið hratt undanfarið er tækni með tvíþætt notagildi (e. dual use), það er lausnir sem nýtast bæði á almennum markaði og á sviði öryggis- og varnarmála. Nýr veruleiki á alþjóðamörkuðum Á undanförnum árum hefur alþjóðlegt umhverfi breyst til muna. Ríki og bandalög leggja sífellt meiri áherslu á öryggi, viðnámsþrótt, vernd mikilvægra innviða, netöryggi og tæknilegt sjálfstæði. Samhliða því hefur markaður fyrir tæknilausnir sem tengjast þessum þáttum stækkað ört. Þetta er ekki lengur afmarkað eða fjarlægt umræðuefni, heldur nýr veruleiki og þar felast raunveruleg útflutningstækifæri fyrir íslensk fyrirtæki. Ísland hefur ýmislegt fram að færa á þessu sviði. Hér starfa fyrirtæki sem byggja á hugbúnaðarþróun, gagnavinnslu, gervigreind og sérhæfðum lausnum fyrir krefjandi aðstæður. Við búum einnig yfir reynslu úr atvinnugreinum þar sem áreiðanleiki, öryggi og aðlögunarhæfni skipta miklu máli. Það er einmitt slíkt umhverfi sem skapar tækifæri fyrir lausnir sem eiga erindi langt út fyrir íslenskt samfélag. Dæmin eru þegar til staðar: - Teledyne Gavia hannar og framleiðir ómannaða kafbáta sem eru nýttir til upplýsingaöflunar og kortlagningar á hafsvæðum, bæði fyrir vísindalegar rannsóknir og við sprengjuleit. - Hefring Marine hefur þróað kerfi sem safnar rauntímagögnum um borð í smærri skipum og bátum og spáir fyrir um hreyfingar sem bæði eykur öryggi og sparar eldsneyti. Þetta nýtist jafnt bátum í ferðaþjónustu sem og landhelgisgæslu. - Arctic Trucks og Rafnar hafa þróað lausnir fyrir krefjandi umhverfi þar sem öryggi, ending og aðlögunarhæfni skipta miklu máli. - Kerecis og Embla Medical eru lífvísindafyrirtæki sem hafa skapað lausnir jafnt fyrir almenna notendur og slasaða hermenn. Þær lausnir byggja á íslensku hugviti, rannsóknum og sérhæfðri þekkingu en ná langt út fyrir landsteinana. Verðmæti sem verða til heima Það skiptir líka máli fyrir íslenskt samfélag í heild að við lítum á þessi tækifæri sem hluta af stærri mynd. Þegar íslensk fyrirtæki ná árangri erlendis verða til verðmæti heima. Nýr útflutningur styrkir atvinnulíf, eykur fjölbreytni hagkerfisins og dregur úr viðkvæmni gagnvart sveiflum í einstökum greinum. Hugvit og tækni eru því ekki bara spennandi atvinnugrein, heldur hluti af framtíð Íslands. Þess vegna þurfum við að nálgast umræðuna um útflutning með opnum hug. Hún má ekki einskorðast við það sem við höfum alltaf gert, heldur taka mið af þeim sviðum sem eru í hröðum vexti og geta skapað mikil verðmæti til framtíðar. Þar er tækni með tvíþætt notagildi eitt áhugaverðasta tækifærið sem blasir við íslenskum fyrirtækjum í dag. Framlag Íslands í breyttri heimsmynd Þótt Ísland sé lítið land skiptir framlag okkar til alþjóðlegs samstarfs máli. Við eigum þekkingu, tækni og sérhæfðar lausnir, til dæmis á sviði samgangna, netöryggismála, orkuöryggis og lífvísinda, sem geta nýst þar sem kröfur eru miklar um öryggi, áreiðanleika og viðnámsþrótt. Með því að byggja áfram upp fyrirtæki og lausnir á þessum sviðum getum við ekki aðeins skapað ný útflutningstækifæri, heldur einnig tekið virkari þátt í alþjóðlegu samstarfi. Undanfarna mánuði hefur Íslandsstofa unnið að kortlagningu tækifæra á sviði tvíþættrar tækni fyrir íslensk fyrirtæki og jafnframt stutt við þau með því að nýta þá reynslu, þekkingu og alþjóðlegu tengsl sem stofan býr yfir. Spurningin er ekki hvort Ísland eigi erindi inn á þennan markað, heldur hvernig við getum nýtt tækifærin eða jafnvel skapað þau sjálf. Höfundur er fagstjóri hugvits og tækni hjá Íslandsstofu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Nýsköpun Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar