Þakklát fyrir það sem hún hefur eftir erfið veikindi Valur Páll Eiríksson skrifar 9. apríl 2026 15:45 Katla Tryggvadóttir glímdi við erfið veikindi en fagnar því mjög að vera komin út á völlinn aftur. Vísir/Bjarni „Það er mjög gaman að hitta stelpurnar og fá að knúsa fólkið sitt,“ segir landsliðskonan Katla Tryggvadóttir sem býr sig undir leiki Íslands við Úkraínu og England í næstu viku. Hún fagnar því að komast í hópinn eftir erfið veikindi sem héldu henni frá síðustu leikjum. „
Þetta er mjög spennandi. Mikilvægir leikir, það er alveg klárt að við þurfum að ná í þrjú stig á móti Úkraínu og við erum bara vel stemmdar,“ segir Katla sem mætir sjálf öflug til leiks. Klippa: Þakklát eftir erfið veikindi „Ég er ekkert eðlilega fersk. Ég er bara orðin góð og hlakka ótrúlega til að fá að spila,“ segir Katla. Hún missti af fyrstu tveimur leikjum Íslands í undankeppninni sem töpuðust fyrir Spáni og Englandi ytra í byrjun mars. Nýrnasýking gerði vart við sig þegar hún kom til Spánar með landsliðinu og hún þurfti að dvelja á spítala um hríð. Það voru töluverðar raunir. „Þetta voru sjö dagar á spítalanum á Spáni og svo kom ég aðeins heim til að jafna mig. En þetta var bara verkefni sem ég þurfti að tækla og það minnir mann á að vera þakklátur fyrir það sem maður hefur, að gera það sem maður elskar á hverjum degi,“ segir Katla. En hvernig lýstu veikindin sér? „Ég var búin að vera veik í vikunni fyrir síðasta landsliðsglugga og verið aðeins slæm í bakinu en var ekkert að spá mikið í því. Við söfnumst saman á Spáni en á fyrsta degi segir Svala læknir að þetta gangi ekki og við förum upp á spítala. Þá kom í ljós að ég var með bólgu og sýkingu í nýranu. Ekki næs,“ segir Katla sem þurfti nokkrar vikur til að ná sér að fullu. „Ég tók fimm daga á Íslandi að ná orkustiginu aftur upp. Svo fór ég til Flórens og við gerðum þetta bara vel, byggðum mig hægt og rólega upp. Ég er búin að vera á fullu núna í þrjár vikur og mér líður bara mjög vel.“ Líkt og Katla kemur inn á er hún búsett í Flórens og leikur með Fiorentina í ítölsku A-deildinni. Henni líkar vel lífið á Ítalíu. „Lífið er gott. Það varð enn betra þegar Hlín kom. Ég fíla að vera þarna.“ Ísland mætir Úkraínu í fyrri leik yfirstandandi landsliðsglugga. Sá leikur verður að vinnast, ætli stelpurnar okkar sér þriðja sæti riðilsins. „Það er bara rosalega einfalt. Við þurfum að ná þremur stigum úr þessum leik. Það er mikilvægt að við séum allar fókuseraðar og á sömu blaðsíðu með það,“ segir Katla. Viðtalið má sjá í spilaranum að ofan.
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira