Luis Díaz: Ég tók rétta ákvörðun með því að fara frá Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. apríl 2026 13:01 Luis Díaz fagnar marki með Harry Kane í sigri Bayern München á Real Madrid á Spáni. Getty/ Aitor Alcalde Kólumbíumaðurinn Luis Díaz telur sig hafa tekið rétta ákvörðun með því að ganga til liðs við þýska félagið Bayern München frá Liverpool síðasta sumar.
Framherjinn hefur verið í stórkostlegu formi fyrir þýsku risana með 23 mörk og 18 stoðsendingar í 40 leikjum síðan hann kom til félagsins í júlí fyrir 75 milljónir evra. Díaz var hjá Liverpool frá 2022 til 2025 og vann fimm titla með félaginu. Hann komst næst því að vinna Meistaradeildina með enska félaginu þegar Liverpool tapaði á móti Real Madrid í úrslitaleiknum 2022. Díaz, sem skoraði opnunarmark liðs síns í 2-1 sigri Bayern á Real Madrid í fyrri leik átta liða úrslita Meistaradeildarinnar á þriðjudag, er þess fullviss að hann tók hárrétta ákvörðun með því að fara fram Liverpool. Mér líður frábærlega „Það var rétt ákvörðun að ganga til liðs við Bayern. Ég er virkilega ánægður og nýt hvers einasta leiks. Mér líður frábærlega, ég er í góðu formi og það þýðir að ég er tilbúinn að hjálpa liðinu,“ sagði Luis Díaz. Díaz, sem búist er við að verði í byrjunarliði Kólumbíu á heimsmeistaramótinu í sumar, telur að sterkt tímabil Bayern megi þakka góðum liðsanda. „Við höfum skýra áætlun, við erum mjög samheldinn hópur og það sést á vellinum,“ sagði Díaz. Bayern er með níu stiga forskot á Borussia Dortmund á toppi Bundesligunnar þegar sex leikir eru eftir. Þeir eru einnig enn með í þýsku bikarkeppninni og mæta Bayer Leverkusen í undanúrslitum þann 22. apríl. Þar áður á Bayern spennandi viðureign gegn Real Madrid í Meistaradeildinni. Díaz fannst að lið hans ætti að hafa meira forskot fyrir seinni leikinn í næstu viku. Bayern átti níu skot í markið á Bernabéu og hélt sig við leikáætlunina. Smá vonbrigðatilfinning „Við höfðum þegar greint Real Madrid og sóknin [sem leiddi að opnunarmarkinu] fór nákvæmlega eins og við höfðum skipulagt,“ sagði Díaz. „Okkur leið betur eftir því sem leið á leikinn, unnum boltann oftar og stjórnuðum leiknum betur. Það er það sem okkur líkar að gera,“ sagði Díaz. „Við erum mjög ánægðir en sitjum eftir með smá vonbrigðatilfinningu yfir því að við hefðum getað skorað eitt eða tvö mörk í viðbót. Við spiluðum frábæran leik gegn mjög erfiðum andstæðingi,“ sagði Díaz.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Liverpool FC Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Thelma Karen fer ekki á EM Fótbolti Fleiri fréttir Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen Sjá meira