Íran og Hormuz-sund Arnór Sigurjónsson skrifar 8. apríl 2026 18:30 Bandaríkin og Íran hafa náð samkomulagi um tveggja vikna vopnahlé og samningaviðræðum um varanlegan frið sem hefjast á föstudag n.k. í Pakistan. Samkomulagið grundvallast á tíu liðum sem Íranar lögðu fram sem grundvöll vopnahlésins og Trump, forseti samþykkti sem grundvöll viðræðna. Þær endurspegla ítrustu kröfur Írana, þ.m.t. afnám efnahagsþvingana, áframhaldandi auðgun úrans, að yfirráð þeirra yfir Hormus-sundi verði viðurkennd og árásaraðilar greiði skaðabætur fyrir ónýta eða skemmda innviði. Það á eftir að koma í ljós hvort þetta vopnahlé heldur, m.a. vegna áframhaldandi árása Ísrael á Líbanon. Eftirfarandi er það sem skiptir máli í dag: ·Bæði ríkin hafa lýst yfir sigri. En það er Íran sem mótar dagskrá friðarviðræðna, ekki Bandaríkin. Eftir að hafa hótað því að þurrka út siðmenningu Írana á einni nóttu gafst forseti Bandaríkjanna upp og greip fyrsta tækfifærið sem gafst til að stöðva stríðið, jafnvel þó svo að það geti orðið tímabundið. Að sögn stóðu Kínverjar þétt við hlið Írana og Pakistana þegar ákvörðunin um vopnahlé var tekin. Bandaríkin hafa ekki náð þeim markmiðum sem stefnt var að í upphafi, þ.e. að steypa írönsku klerkastjórninni og koma í veg fyrir að þeir framleiddu kjarnorkuvopn. Þau náðu hinsvegar árangri í að eyða flugher og sjóher landsins, en tókst ekki að koma í veg fyrir áframhaldandi eldflaugaárásir og drónaárásir á Ísrael eða nærliggjandi ríki. Eyðilegging vegna stríðsátakanna er gífurleg. Íranir munu halda áfram að auðga úran og hafi áður verið talið líklegt að þeir framleiddu kjarnorkuvopn má telja enn líklegara að þeir, að fenginni reynslu, leggi enn meiri áherslu á það nú. Hormuz-sund var ekki þrætuepli fyrir stríðið. En Íranir hafa uppgötvað hversu skilvirkt vopn Hormuz-sundið er í stríðsátökum og þeirri ormagryfju verður ekki auðveldlega lokað aftur. Nú krefjast Íranar yfirráða yfir umferð um sundið og öllum skipum sem þar vilja fara um er beint Norður fyrir Lakir eyju sem liggur skammt frá strönd Írans. Þar eru skipin skoðuð, m.a. með tilliti til skráningar og hvort þau teljist tilheyra óvinveittum þjóðum. Þau þurfa einnig að greiða toll sem talin er vera um tvær milljónir dollara fyrir hvert skip. Að sjáfsögðu er þetta brot á öllum alþjóðalögum um frjálsa umferð skipa á alþjóðahafsvæðum sem hafa þróast yfir mörg hundruð ár. Verði þessar kröfur og gjaldtaka Írana viðurkennd í yfirstandandi samningaviðræðum mun það hafa alvarlegar afleiðingar fyrir frjálsa umferð skipa um önnur sund samanber Dardanella-sundið eða Tævan-sundið. Og það mun eftir sem áður vera kverkatak á alþjóðlegum olíuflutningum eða frakt með tilheyrandi afleiðingum fyrir efnahagslíf alheimsins. Slíkt ástand er óþolandi og mun leiða til nýrra stríðsátaka við Íran af hálfu þeirra ríkja sem eiga allt sitt undir frjálsri umferð skipa á alþjóðlegum hafsvæðum. Bandaríkin og Ísrael hafa valdið miklum skaða á heimsvísu með árásinni á Íran. Það veldur ef til vill engri undrun að Ísrael vilji koma höggi á Íran, en orðspor Bandaríkjanna hefur beðið mikinn hnekki. Höfundur er sérfræðingur í varnarmálum Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnór Sigurjónsson Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen Skoðun Skoðun Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Sjá meira
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun