Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Valur Páll Eiríksson skrifar 8. apríl 2026 10:32 Dagný Brynjarsdóttir smellir kossi á Brynjar son sinn sem hefur engan húmor fyrir röngum framburði íslenskra lýsenda á nafni Jarrods Bowen. VÍSIR/VILHELM Fótboltakonan Dagný Brynjarsdóttir biðlar til íslenskra knattspyrnulýsenda að vanda til verka sjö ára sonar hennar vegna.
Dagný lék síðast með West Ham United í ensku úrvalsdeildinni en samningur hennar við liðið rann út síðasta sumar. Hún hefur síðan verið í barneignarleyfi en hún eignaðist sitt þriðja barn þann 1. apríl síðastliðinn. Dagný hefur verið stuðningsmaður West Ham frá blautu barnsbeini og sá áhugi á Hömrunum virðist hafa skilað sér til Brynjars, elsta sonar hennar. Sá stutti virðist hins vegar óður yfir framburði íslenskra fótboltalýsenda á nafni stjörnu karlaliðs félagsins, Jarrod Bowen, ef marka má færslu Dagnýjar á samfélagsmiðlinum X í gær. „Getur einhver komið því áleiðis til íslenskra commentators að nafnið á fyrirliða West Ham er borið fram sem BÁWEN en ekki Booowen. Þetta fer í taugarnar á 7 ára syni mínum. Takk fyrir,“ skrifaði Dagný. Gunnar Ormslev, sem lýsir enska boltanum á Sýn Sport, var snar til svars á X og kveðst ætla að taka beiðnina til sín í framtíðarlýsingum á leikjum Hamranna. Getur einhver komið því áleiðis til íslenskra commentators að nafnið á fyrirliða West Ham er borið fram sem BÁWEN en ekki Booowen. Þetta fer í taugarnar á 7 ára syni mínum. Takk fyrir ⚒️— Dagný Brynjarsdóttir (@dagnybrynjars) April 7, 2026 West Ham situr í fallsæti, því átjánda í ensku úrvalsdeildinni, og féll úr leik í enska bikarnum um helgina eftir svekkjandi tap fyrir Leeds í vítaspyrnukeppni. Næsti leikur liðsins er á föstudagskvöld þar sem Wolves heimsækir liðið til Lundúna, sem er kjörið tækifæri fyrir West Ham til að fara af fallsvæðinu og senda Tottenham þangað niður í staðinn. Mæðginin Dagný og Brynjar munu eflaust sitja límd við skjáinn og fylgjast sérlega vel með framburði lýsanda leiksins.
West Ham United Enski boltinn Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Sjá meira