Vinícius Júnior segir mikilvægt að Yamal láti í sér heyra Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. apríl 2026 12:30 Lamine Yamal og Vinicius Junio sjást hér í leik erkifjendanna Real Madrid og Barcelona. Getty/ Maria Gracia Jimenez Vinícius Júnior framherji Real Madrid hrósaði stjörnuleikmanni Barcelona, Lamine Yamal, fyrir að fordæma opinberlega níðsöngva gegn múslimum í nýlegum leik og sagði að leikmenn þyrftu að standa saman í baráttunni gegn mismunun.
Vinícius tjáði sig viku eftir að Yamal gagnrýndi níðsöngva spænskra stuðningsmanna í vináttuleik lands síns gegn Egyptalandi síðastliðinn þriðjudag. Yamal, sem er múslími, sagði að söngvarnir væru vanvirðandi og óþolandi. Vinícius, sem er brasilískur landsliðsmaður, hefur oft orðið fyrir kynþáttaníði þegar hann spilar í Evrópu og er óhræddur við að tjá sig um baráttuna gegn kynþáttafordómum. Hann sagði að það væri „alltaf flókið“ að tala um efnið en „þessir hlutir gerast oft“. Vinicius Junior backs Lamine Yamal in unified fight against racism as Real Madrid and Barcelona stars join forces 🤝🔥Read more 🔗 https://t.co/HAlnMfhE6T pic.twitter.com/DfdaMTmuEQ— GOAL (@goal) April 6, 2026 „Vonandi getum við haldið þessari baráttu áfram. Það er mikilvægt að Lamine tali um þetta. Það gæti hjálpað öðrum. Við erum frægir, við eigum peninga og við getum höndlað þessa hluti betur en fátæka fólkið og svarta fólkið alls staðar á örugglega erfiðara en við. Þannig að við verðum að standa saman, þeir sem hafa sterkari rödd, leikmennirnir,“ sagði Vinícius. Í leik í Meistaradeildinni í Lissabon í síðasta mánuði sakaði Vinícius leikmann Benfica, Gianluca Prestianni, um að hafa kallað hann apa eftir að brasilíski framherjinn fagnaði fyrir framan stuðningsmenn heimaliðsins þegar hann skoraði fyrir Real Madrid. Stuðningsmenn Benfica kölluðu að Vinícius úr stúkunni. „Ég er ekki að segja að Spánn, Þýskaland eða Portúgal séu lönd með meira kynþáttarhatur en það eru rasistar í þessum löndum, og í Brasilíu og öðrum löndum líka,“ sagði Vinícius. „En ef við höldum áfram að berjast saman, þá held ég að framtíðarleikmenn og fólk almennt þurfi ekki að ganga í gegnum þetta aftur,“ sagði Vinícius. Lamine Yamal has spoken out about the “intolerable” anti-Muslim chanting heard during Spain's friendly game against Egypt on Tuesday night. pic.twitter.com/ZbfenRo7CF— Sky Sports Football (@SkyFootball) April 1, 2026
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Spænski boltinn Real Madrid CF FC Barcelona Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira