Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Rakel Sveinsdóttir skrifar 4. apríl 2026 10:02 Fannar Örn Þorbjörnsson, ramkvæmdastjóri Terra Eininga og Öryggisgirðinga, finnst gott að snúsa en reynir reglulega að fara í átak þar sem hann vaknar fyrr og skellir sér í ræktina. Að fara út með hundinn Erró er alltaf hressandi, sama hvernig viðrar. Þeir félagarnir taka þá spjallið saman. Vísir/Vilhelm Fannar Örn Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Terra Eininga og Öryggisgirðinga, segir það alltof gott að snúsa á morgnana. Reglulega reynir hann þó að fara í átak, vakna klukkan 06.30 og skella sér í ræktina áður en hann fer að vinna. Síðan hefst snúsið á ný.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Ég fer yfirleitt frammúr um sjö á morgnana, pikka í krakkana og fer svo út með hundinn. Ætla mér reyndar alltaf að vakna fyrr til að hafa meiri tíma fyrir hundinn og sjálfan mig á morgnana en það hefur reynst erfitt að vakna fyrr, finnst alltof gott að snúsa tvisvar áður en ég fer frammúr. Ég tek reyndar inn á milli skorpur í að vakna 6.30 en held það yfirleitt ekki lengi út. Þá reyni ég inn á milli að fara í ræktina fyrir vinnu þegar skipulag heimilisins leyfir það og mæti svo ferskur á skrifstofuna.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Flesta morgna þá byrja ég á að fá mér vítamín, vatnsglas og fer svo út með hundinn í morgungöngu. Hundurinn vaknar alltaf mjög sprækur á morgnana og byrjar að suða í mér að fara út og fá að borða. Þó að það geti verið erfitt að koma sér af stað yfir veturinn þegar veðrið er slæmt þá er þetta alltaf jafn gott eftir á að fara út, tala aðeins við hundinn og vakna vel. Fer svo í sturtu og fæ mér kaffibolla áður en ég skutla miðjubarninu í skólann.“ Hvaða skemmtilegu eða fyndnu páskaminningu úr æsku heldur þú alltaf sérstaklega upp á? „Páskarnir hafa alltaf verið frábærir bæði í minningunni og einnig nú til dags. Þeir hafa alltaf einkennst af samveru með fjölskyldunni. Á seinni árum hafa þeir verið yndislegir. Þegar allt er á fullu alla daga í vinnu, sjálfboðaliðastörfum og samveru með fjölskyldunni, finnst mér páskarnir alltaf koma á frábærum tíma til að stimpla sig út, fara í sumarbústaðinn og núllstilla sig í rólegum heitum úti í náttúrunni með fjölskyldunni.“ Fannar segist hafa prófað ýmiss tól fyrir skipulagið en á endanum sé það alltaf gamla góða stílabókin sem virki best. Skrifar í hana alla punkta og hefur hana opna á borðinu fyrir framan sig. Með stjórnendateyminu vinnur hann síðan alltaf með lykilverkefni fyrirtækisins ofarlega á lista.Vísir/Vilhelm Í hvaða verkefni ertu að vinna helst þessa dagana? „Það eru mörg verkefni á borðinu eins og er. Við erum með mörg stór framkvæmdaverkefni í gangi núna sem krefst mikillar skipulagningar. Ég er heppinn að vinna með frábæru teymi starfsmanna og eins og er erum við mikið að skipuleggja verkefnin sem eiga að fara í gang í sumar. Sumarið er sá tími þar sem mest er um að vera og mjög mikilvægt fyrir okkur að allt gangi upp og að við stöndumst tímaáætlanir. Svo er ég líka að vinna í nýrri framtíðarstefnu fyrirtækisins til næstu ára með stjórnendum og starfsfólki. Við settum framtíðarsýn fyrir fyrirtækið fyrir þremur árum sem hefur ræst vel úr. Áherslan þá var meðal annars að stækka fyrirtækið bæði með innri og ytri vexti. Á síðustu tveimur árum keyptum tvö fyrirtæki sem harmonira vel við starfsemi Terra Eininga. Nú er komið að því að endurheimsækja stefnuna og framlengja fram í tímann, með skýrum markmiðum og áherslum til að halda áfram þeirri vegferð sem við höfum verið á. Svo fyrir utan vinnu er ég í sjálfboðavinnu fyrir handboltadeild Vals. Mikill áhugi er innan fjölskyldunnar á handbolta og er öll fjölskyldan með í því.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? „Almennt séð er ég nokkuð vel skipulagður enda í mörg horn að líta og auðvelt að gleyma einhverjum hlutum í amstri dagsins. Ég hef farið marga hringi með hvernig best er að skipuleggja mig. Nota ýmis tól til skipulagningar en er reyndar búinn að komast að því að gamla góða stílabókin er að virka best fyrir mig. Hef hana opna fyrir framan mig á borðinu með öllum punktunum sem ég hef skrifað í hana. Þannig næ ég að vinna í þeim málum sem eru mikilvægust svo engir boltar detti í gólfið. Finnst mjög mikilvægt að hafa góða yfirsýn yfir gang mála, vinn mikið út frá tölulegum gögnum og skoða þau daglega til að átta mig á þróuninni og hvaða áherslumál þarf að vinna í. Þá vinn ég ásamt stjórnendateyminu mínu alltaf með lykilverkefni fyrirtækisins ofarlega á lista, áttum einmitt vinnufund fyrir um viku síðan þar sem við vorum að taka stöðuna á þeim og ákveða áherslur næsta ársfjórðungs.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Mér finnst mjög gott að fara snemma upp í rúm og ætla mér alltaf að fara að sofa strax. Er oft kominn upp í um 22 á kvöldin en vandamálið sem ég er að reyna að vinda ofan af er að ég á það til að detta í símann í eitthvað heilalaust áhorf sem ég festist oft yfir. En finnst reyndar rosalega gott að setja fróðlegt podcast í gang til að sofna yfir.“
Kaffispjallið Tengdar fréttir „Ég var geggjuð skvísa, en það er ekki mér að þakka“ Erla Ásgeirsdóttir, stjórnarkona og tilvonandi frumkvöðull, segir nátthrafnana á heimilinu oft halda vöku fyrir þeim hjónum. En þarf þó að viðurkenna á sig að vaka stundum of lengi við að horfa á sjónvarpið uppi í rúmi eða hlusta á Storytel. 28. mars 2026 10:02 „Annar er létt geggjaður og skemmtilegur og hinn alveg grjótharður“ Brynjar Valsteinsson, framkvæmdastjóri Gosfélagsins, segir morgnana frekar einfalda rútínu en viðurkennir að fara of seint að sofa. Þá kalli á að horfa á íþróttir eða ókláraðan þátt. Hetjur úr gömlum bíómyndum eru annars vegar einn grjótharður og hins vegar einn létt geggjaður. 14. mars 2026 10:00 Það getur allt gerst ef forstjórinn vakir fram yfir klukkan tíu Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar, er snúsari og hæg í gang á morgnana en mjög góð í að segja brandara. Oft sofnar hún með dóttur sinni rétt fyrir klukkan tíu á kvöldin, en í þau skipti sem hún nær að vaka fram yfir þann tíma getur allt gerst: Kvöldin eru besti tíminn! 21. mars 2026 10:02 „Algjörir B-menn og kreistum hverja mínútu sem okkur gefst“ Ásmundi Atlasyni, markaðsstjóra Dominos, fannst hann nettur á fermingardaginn, enda í sínum fyrstu jakkafötum. Þessa dagana snýst allt um nýfædda soninn og nú er spurning hvort sá verði jafn mikill B-maður og stóri bróðir og pabbi. 28. febrúar 2026 10:02 Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova, átti það til að mála sig í bílnum á leiðinni í vinnuna en er nú farin að vera duglegri að hafa sig til heima áður en hún leggur af stað. Sylvía gefur sjálfri sér 7-8 í einkunn fyrir handlagnina heima fyrir. 7. mars 2026 10:02 Mest lesið Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Sjá meira
„Ég var geggjuð skvísa, en það er ekki mér að þakka“ Erla Ásgeirsdóttir, stjórnarkona og tilvonandi frumkvöðull, segir nátthrafnana á heimilinu oft halda vöku fyrir þeim hjónum. En þarf þó að viðurkenna á sig að vaka stundum of lengi við að horfa á sjónvarpið uppi í rúmi eða hlusta á Storytel. 28. mars 2026 10:02
„Annar er létt geggjaður og skemmtilegur og hinn alveg grjótharður“ Brynjar Valsteinsson, framkvæmdastjóri Gosfélagsins, segir morgnana frekar einfalda rútínu en viðurkennir að fara of seint að sofa. Þá kalli á að horfa á íþróttir eða ókláraðan þátt. Hetjur úr gömlum bíómyndum eru annars vegar einn grjótharður og hins vegar einn létt geggjaður. 14. mars 2026 10:00
Það getur allt gerst ef forstjórinn vakir fram yfir klukkan tíu Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar, er snúsari og hæg í gang á morgnana en mjög góð í að segja brandara. Oft sofnar hún með dóttur sinni rétt fyrir klukkan tíu á kvöldin, en í þau skipti sem hún nær að vaka fram yfir þann tíma getur allt gerst: Kvöldin eru besti tíminn! 21. mars 2026 10:02
„Algjörir B-menn og kreistum hverja mínútu sem okkur gefst“ Ásmundi Atlasyni, markaðsstjóra Dominos, fannst hann nettur á fermingardaginn, enda í sínum fyrstu jakkafötum. Þessa dagana snýst allt um nýfædda soninn og nú er spurning hvort sá verði jafn mikill B-maður og stóri bróðir og pabbi. 28. febrúar 2026 10:02
Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova, átti það til að mála sig í bílnum á leiðinni í vinnuna en er nú farin að vera duglegri að hafa sig til heima áður en hún leggur af stað. Sylvía gefur sjálfri sér 7-8 í einkunn fyrir handlagnina heima fyrir. 7. mars 2026 10:02