Enzo Fernandez verður í agabanni í næstu tveimur leikjum Chelsea Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. apríl 2026 12:33 Enzo Fernandez er varafyrirliði Chelsea og hefur verið talsvert með bandið í forföllum Reece James. getty/Marc Atkins Enzo Fernandez mun ekki spila næstu tvo leiki með enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea eftir að hafa gengið of langt með ummælum sínum um framtíð sína hjá félaginu að mati stjórans Liam Rosenior.
Eftir að Chelsea féll úr leik í Meistaradeildinni í síðasta mánuði sagði Fernandez í viðtali við ESPN að hann vissi ekki hvort hann yrði áfram á Stamford Bridge á næsta tímabili. Hinn 25 ára gamli Argentínumaður gekk til liðs við Chelsea fyrir breskt metfé, 107 milljónir punda, í janúar 2023 og hefur spilað 161 leik. Rosenior sagði að miðjumaðurinn hefði verið tekinn úr hópnum fyrir átta liða úrslit ensku bikarkeppninnar gegn Port Vale á laugardag og leikinn í ensku úrvalsdeildinni gegn Manchester City þann 12. apríl. Enzo Fernandez has been dropped from Chelsea's squad, says manager Liam Rosenior.It's after the midfielder fueled talks of a move to Real Madrid in the summer. pic.twitter.com/gRbenG08iO— BBC Sport (@BBCSport) April 3, 2026 „Það eru vonbrigði að Enzo skuli tjá sig með þessum hætti,“ sagði Rosenior á blaðamannafundi. Fernández hefur ítrekað verið orðaður við Real Madrid í sumar. Í samtali við ESPN í Argentínu sagði Fernández eftirfarandi: „Ég einbeiti mér að Chelsea. Svo kemur HM og svo sjáum við til eftir það,“ sagði Fernández. Síðan hélt hann áfram að tala um Madríd sem borg. „Mér líkar við Madríd. Hún minnir mig á Buenos Aires,“ svaraði Fernández og bætti við að hann gæti vel hugsað sér að búa í spænsku höfuðborginni.“ 🚨 Enzo Fernández will be left OUT of next two games by Chelsea after his recent quotes on future, Madrid and more.“Enzo will NOT play tomorrow and against Man City. I have no bad words for him but a line was crossed and we had to SANCTION Enzo”, says Liam Rosenior. pic.twitter.com/reYYMOpTUE— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) April 3, 2026 Þessi ummæli voru eitthvað sem Rosenior líkaði ekki. „Sem persóna hef ég ekkert slæmt um Enzo að segja en hann fór yfir strikið hvað varðar menningu okkar. Við urðum að beita hann viðurlögum,“ sagði stjóri Chelsea. Argentínumaðurinn er með samning við Lundúnafélagið til ársins 2032. Hann var keyptur frá Benfica árið 2023.
Enski boltinn Chelsea FC Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Sjá meira