Þeir vissu sannleikann en seldu okkur efasemdir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar 7. apríl 2026 07:02 Á undanförnum misserum hafa rannsóknir flett ofan af risastórum blekkingarleik. Á meðan heimsbyggðin horfir upp á metheit ár og mánuði og enn öfgafyllri veður, sýna gögn að stærstu olíufyrirtæki heims, með ExxonMobil í fararbroddi, vissu þetta fyrir tæpri hálfri öld. Þau vissu ekki bara að hlýnun væri yfirvofandi; vísindamenn þeirra reiknuðu út nokkuð nákvæmlega hversu mikil hún yrði. Samt völdu stjórnendur þeirra að fjárfesta milljörðum í að selja okkur þá hugmynd að vísindin væru „óviss“. Nákvæmari en flestir þorðu að spá Nýleg rannsókn í tímaritinu Science sýnir að á árunum 1977 til 2003 voru vísindamenn Exxon með ótrúlega nákvæm spálíkön. Þeir spáðu því að jörðin myndi hlýna um tæplega 0,2 gráður á áratug vegna brennslu jarðefnaeldsneytis. Ef við berum þessar spár saman við raunverulegar mælingar dagsins í dag, kemur í ljós að vísindamenn fyrirtækisins höfðu rétt fyrir sér í allt að 83% tilvika. Þeir vissu hvenær hlýnunin myndi verða vel merkjanleg (í kringum aldamótin) og þeir vissu hversu mikið CO2 mætti fara út í andrúmsloftið áður en í óefni væri komið. Þeir voru með svörin á reiðum höndum á meðan við hin vorum enn að velta fyrir okkur hvort þetta hefði kannski bara verið óvenjulega heitt sumar árið 1998 (hlýjasta ár á heimsvísu fyrir aldamót). Tvöfalt siðferði: Vísindi gegn almannatengslum Mesta hneykslið liggur þó ekki í vísindunum sjálfum, heldur í gjánni á milli þess sem stjórnendur vissu innanhúss og þess sem þeir sögðu opinberlega. Á sama tíma og innri minnisblöð vöruðu við „dramatískum umhverfisáhrifum“, eyddi iðnaðurinn gríðarlegum fjármunum í herferðir til að draga úr trúverðugleika loftslagsvísinda. Aðferðafræðin var einföld: Ef þú getur ekki afsannað vísindin, búðu þá til upplýsingaóreiðu og ringulreið. Lagt var upp úr því að líkönin væru „bara spár“ og að óvissan væri of mikil til að hægt væri að byggja á þeim pólitískar ákvarðanir. Þetta tókst vonum framar; þeim tókst að fresta raunverulegum aðgerðum um áratugi og hafa enn áhrif. Ef rýnt er í kommentakerfi dagsins í dag, sést glöggt að fingraför þessarar herferðar eru enn út um allt í skoðanaskiptum fólks þar og víðar. Íslenskt bergmál: Frá Exxon til „Hitamála“ Arfleifð þessarar kerfisbundnu blekkinga lifir góðu lífi enn þann dag í dag, og Ísland er þar engin undantekning. Það þarf ekki annað en að rýna í málflutninginn í bókinni Hitamál eftir Frosta Sigurjónsson til að sjá hvernig sömu frasarnir og hannaðir voru af PR-deildum olíufélaganna til að breiða yfir eigin vísindi, eru nú matreiddir á ný fyrir íslenska lesendur. Þar er ekkert verið að finna upp hjólið, heldur er boðið upp á gamalt vín á nýjum belgjum. Það er í raun kaldhæðnislegt að fylgjast með því hvernig handrit sem hannað var til að vernda hagsmuni stórfyrirtækja fyrir hálfri öld, er enn selt sem einhverskonar nýr sannleikur í umræðuna í dag. Þar er reynt að stilla upp „skeptík“ sem jafngildi vísinda, talað um „náttúrulegar sveiflur“ eða „galla í líkönum“, nákvæmlega sömu punktana og Exxon mælti með í sínum innri skjölum til að rugla almenning í ríminu. Það er ákveðin kaldhæðni fólgin í því að sjá íslenska leikmenn kynna þetta sem „sjálfstæða gagnrýna hugsun“, þegar boðskapurinn er nánast orðrétt uppskrift úr gömlu úreltu handriti olíuiðnaðarins. Fjárhagslegir hagsmunir: „Þetta er bara business“ Af hverju var þetta gert? Svarið er jafn einfalt og það er eldgamalt: Peningar. Allar aðgerðir til að draga úr losun þýddu minni eftirspurn eftir vörunni þeirra. Með því að tefja reglugerðir og orkuskipti tókst þeim að hámarka hagnað af núverandi innviðum á kostnað vistkerfa jarðar. Í dag er taktíkin orðin fágaðri. Nú heitir þetta „grænþvottur“ eða áhersla á „einstaklingsábyrgð“, að þú eigir að hafa áhyggjur af þínu kolefnisspori á meðan fyrirtækin halda áfram að dæla upp olíu fyrir milljarða og lobbía í leiðinni stjórnvöld og koma í veg fyrir þvingandi lagasetningu (að þeirra mati). Það er dálítið eins og að kveikja í húsi og skamma svo eigandann fyrir að vera ekki með nógu vistvænt slökkvitæki. Samhengið við nútímann Mælingar dagsins í dag staðfesta það sem forstjórar olíurisanna lásu í skýrslum á skrifborðum sínum fyrir 40 árum. Munurinn er sá að við höfum glatað dýrmætustu auðlindinni okkar: Tímanum. Baráttan fyrir loftslaginu er ekki bara barátta við eðlisfræði og efnafræði. Þetta er pólitískt uppgjör við þá sem fórnuðu framtíðinni fyrir ársfjórðungsuppgjör. Við skuldum okkur sjálfum að láta ekki plata okkur í sama leikinn aftur, hvort sem boðskapurinn kemur frá Texas eða úr íslenskum (ó)veruleika. Höfundur er í loftslagshópnum París 1,5 sem berst fyrir því að Íslandi leggi sitt af mörkum til að leysa loftslagsvandann. -- Heimild: Supran, G., Rahmstorf, S., & Oreskes, N. (2023). Assessing ExxonMobil's global warming projections. Science, 379(6628). Ítarefni: Oreskes, N., & Conway, E. M. (2010). Merchants of Doubt: How a Handful of Scientists Obscured the Truth on Issues from Tobacco Smoke to Global Warming. Bloomsbury Press. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sveinn Atli Gunnarsson Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar