Sport

Bergrós vann eina grein og varð efst Ís­lendinga

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bergrós Björnsdóttir stóð sig best af Íslendingum í fjórðungsúrslitum undankeppni heimsleikanna í CrossFit.
Bergrós Björnsdóttir stóð sig best af Íslendingum í fjórðungsúrslitum undankeppni heimsleikanna í CrossFit. @bergrosbjornsdottir

Íslenska CrossFit-konan Bergrós Björnsdóttir er áfram best meðal Íslendinga í undankeppni heimsleikanna í CrossFit en fjórðungsúrslitin fóru fram um helgina.

Bergrós vann fyrstu greinina af fjórum með glæsilegri frammistöðu og endaði að lokum í 51. sæti yfir allan heiminn og í sextánda sæti í Evrópu.

Eftir að hafa verið best í heimi í grein eitt varð Bergrós í 23. sæti í grein tvö og svo í 66. sæti í fjórðu og síðustu greininni. Það gekk ekki eins vel í grein þrjú þar sem hún endaði í 248. sæti sem dró hana nokkuð niður listann.

Greinin sem hún vann snerist um tvær umferðir af tíu fimmtán metra sprettum, tuttugu hnébeygjum með 36 kílóa stöng yfir höfði og þrjátíu burpees-æfingum yfir stöng.

Næsta íslenska konan á eftir Bergrós var Steinunn Anna Svansdóttir sem náði 74. sætinu og Guðbjörg Valdimarsdóttir varð síðan í 152. sæti.

Steinunn Anna varð í 30. sæti í Evrópu, Guðbjörg tók þar 54. sætið en Elín Birna Hallgrímsdóttir (66. sæti) var einnig með hundrað efstu í Evrópu. Tanja Davíðsdóttir (114. sæti) og Hrafnhildur Emilía Helgadóttir (117. sæti) sáu svo til þess að Ísland átti sex konur meðal þeirra efstu 120 í Evrópu.

Bergrós endaði níu sætum ofar en efsti íslenski karlinn sem var Rökkvi Hrafn Guðnason. Rökkvi endaði í 60. sæti á heimsvísu og í sautjánda sæti meðal Evrópumanna.

Rökkvi var í 25. sæti í annarri grein en í 104. sæti eða neðar í hinum þremur. Næsti íslenski karlinn á eftir honum var Haraldur Holgeirsson í 193. sæti. Bjarni Leifs Kjartansson varð svo í 279. sæti. Haraldur varð í 48. sæti í Evrópu en Bjarni í 66. sæti.

Jón Þorri Zar Jónsson (160. sæti), Óskar Marinó Jónsson (168. sæti) voru líka meðal tvö hundruð hæstu í Evrópu.

Það á síðan eftir að koma betur í ljós hvar næstu skref liggja og á hvaða undanúrslitamótum okkar fólk fær inni. Þar verður mjög hörð keppni um að tryggja sér farseðilinn á heimsleikana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×