Guðmundur Ingi leiðir Flokk fólksins Árni Sæberg skrifar 31. mars 2026 15:04 Guðmundur Ingi ávarpaði fundinn. Vísir/Vilhelm Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, verður oddviti Flokks fólksins í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hann tók þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir sömu kosningar en var hafnað.
Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi Flokks fólksins í Tjarnarbíói, sem hófst klukkan 15. Hann má sjá í spilaranum hér að neðan: Mikil leynd hefur ríkt varðandi framboðslistann og aðeins örfáir hafa verið orðaðir við hann. Á föstudag fjallaði Vísir um það að Guðmundur Ingi væri orðaður við listann og um helgina birtist merki Flokks fólksins á heimasíðu hans. Einar Sveinbjörn í öðru Nú hefur verið tilkynnt að Guðmundur Ingi leiði listann. Efstu fimm á listanum eru eftirfarandi: Guðmundur Ingi Þóroddsson Einar Sveinbjörn Guðmundsson, kerfisfræðingur. Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, grunnskólakennari. Sigurveig Jóhannsdóttir, ráðgjafi. Rúnar Sigurjónsson, vélvirki. „Flokkur fólksins heldur bjartsýnn út í kosningabaráttuna í Reykjavík. Áherslur flokksins í núverandi borgarmeirihluta sem stofnað var til fyrir rúmu ári hafa margar skilað sér. Þar ber hæst að nefna aukið framboð á lóðum til íbúðarbygginga þar sem þegar er byrjað að undirbúa skipulag fyrir um 3.700 íbúðir í Úlfarsárdal. Heildaráætlun gerir hins vegar ráð fyrir að þar rísi allt að tíu þúsund íbúðir á næstu árum,“ segir í fréttatilkynningu um framboðslistann. Fjármunir fari í grunnþjónustu Í tilkynningu segir að Flokkur fólksins leggi áherslu á að einfalda stjórnkerfið og að forgangsraða fjármunum fyrst og fremst í grunnþjónustu við íbúa. Helstu stefnumál séu eftirfarandi: Nauðsynlegt er að taka heildstætt á málefnum eldra fólks með því að fækka fólki markvisst á biðlistum, efla heimaþjónustu og styðja við fjölbreyttari búsetuúrræði. Auk þess verður að stuðla almennt að aukinni virkni og bættum lífskjörum eldra fólks. Ráðist verður í stórfellda uppbyggingu á hagkvæmu húsnæði og smærri íbúðum í samstarfi við óhagnaðardrifin félög. Flokkur fólksins mun stemma stigu við lóðabraski og vinda ofan af ofurþéttingu byggðar með því að útvíkka vaxtamörk borgarinnar. Greiða verður fyrir samgöngum og betra umferðarflæði fyrir alla ferðamáta í borginni. Tryggja þarf að samgöngukerfið virki fyrir alla borgarbúa. Taka verður eðlilegt tillit til þeirra fjölmörgu sem reiða sig á einkabílinn dagsdaglega. Leikskólamálin verða tekin föstum tökum með það að aðalmarkmiði að stytta biðlista verulega. Við viljum skoða mun fjölbreyttari og skilvirkari leiðir til að fjölga plássum og koma betur til móts við þarfir barnafjölskyldna á meðan beðið er eftir varanlegu plássi. Grunnskólakerfið verður eflt með ríka áherslu á gæði menntunar, aukna lestrarkennslu, einstaklingsmiðaðan stuðning og vellíðan barna. Nauðsynlegt er að setja snemmtækan og heildstæðan stuðning við börn og ungmenni sem glíma við fjölþættan vanda í algeran forgang. Leggja þarf ríka áherslu á að þættir innan velferðarkerfisins vinni mun betur saman sem ein heild svo engin fjölskylda upplifi sig týnda í kerfinu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Flokkur fólksins Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Mest lesið Kvíðir vetrinum framundan Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira