Frískaðu upp á heimilið með vinsælustu vorlitum Slippfélagsins Slippfélagið 31. mars 2026 09:12 Tveir nýir litir hjá Slippfélaginu eru að koma mjög sterkir inn þessar vikurnar. Um er að ræða litina Blíður og Perlu. Arnar Daði Helgason er verslunarstjóri Slippfélagsins í Skútuvogi. Með vorinu kemur oft löngunin til að fríska upp á heimilið. Veggurinn sem virtist fullkominn í haust er allt í einu orðinn aðeins þreyttur og hugmyndin um að breyta til verður freistandi. Hjá Slippfélaginu eru nýir vorlitir komnir í forgrunn en þeir eru hlýir, mjúkir og fullir af rólegri skandinavískri stemningu. „
Það eru tveir litir sem eru að koma mjög sterkir inn hjá okkur núna,“ segir Arnar Daði Helgason, verslunarstjóri Slippfélagsins í Skútuvogi. „Annars vegar er það liturinn Blíður sem er nýr litur frá Soffíu í Skreytum hús. Um er að ræða hlýjan og þægilegan tón sem hún vann út frá Mjúkur litatríóinu sínu. Svo er það Perla, sem er hlýr drapplitaður litur sem gefur rýminu rólegt, náttúrulegt og mjög fallegt skandinavískt yfirbragð. Þetta eru litir sem virðast nánast anda út ró. Svona litir sem fá mann til að vilja kveikja á kertum þó það sé bjart úti.“ Liturinn Blíður er frá Soffíu í Skreytum hús. Um er að ræða hlýjan og þægilegan tón sem hún vann út frá Mjúkur litatríóinu sínu. Tískusveiflur eru líka í málningu Ef einhver hélt að tískusveiflur ættu ekki við um málningu þá er það misskilningur að sögn Arnars. „Við sjáum greinilega að fólk er að færa sig frá kaldari tónum yfir í hlýrri jarðliti. Beige, brúnir og mildir leirlitir eru mjög vinsælir núna. Þeir sækja innblástur í náttúruna og skapa afslappað, jafnvægið andrúmsloft.“ Perla er hlýr drapplitaður litur sem gefur rýminu rólegt, náttúrulegt og mjög fallegt skandinavískt yfirbragð. Og það er auðvelt að skilja hvers vegna. Hlýir jarðlitir gera heimilið notalegra, mýkja birtuna og skapa tímalausan grunn sem auðvelt er að byggja ofan á með húsgögnum, textíl og smáatriðum. „Í heildina hjálpa þessir litir við að tengja rýmið innandyra við náttúruna og skapa hlýtt, rólegt og samræmt heimili,“ bætir hann við. Loftið eru að fá meira pláss en áður Ein þróun sem starfsfólk Slippfélagsins sér skýrt er að fólk er orðið mun djarfara í litavali innan heimilisins. „Nú er t.d. algengara en áður að fólk máli loft og veggi í sama tón,“ segir Arnar. „Matta málningin okkar hentar sérstaklega vel fyrir það.“ Þá eru margir að velja dekkri tón í svefnherbergið og ljósari útgáfu af sama lit í alrýmið. „Það skapar fallegt flæði um heimilið. Svefnherbergið verður rólegra og hlýlegra, á meðan alrýmið helst bjart og opið. Það má því segja að heimilið fái þannig samræmdan karakter án þess að allt verði þó eins.“ Kíktu til Slippfélagsins og skoðaðu litaúrvalið. Fyrsta skrefið að mæta í verslunina og skoða litina Fyrir þá sem hafa lengi hugsað: „Ég ætti kannski að mála,“ en komast ekki lengra en það, á Arnar einfalt ráð. „Endilega mætið í verslanirnar okkar, skoðið litina og fáið ráðleggingar frá starfsfólki okkar. Við hjálpum fólki að finna réttu lausnina og bjóðum líka upp á litaprufur. Stundum er fyrsta skrefið einfaldlega að sjá litinn með eigin augum.“ En hvað einkennir helst málningu Slippfélagsins? „Við framleiðum innimálninguna okkar á Íslandi og höfum því mjög góða stjórn á gæðum og framleiðsluferlinu. Við leggjum mikla áherslu á góða þekju, fallega áferð og áreiðanleg gæði sem henta íslenskum heimilum. Og það skiptir marga máli að heyra að málningin er Svansvottuð og uppfyllir strangar kröfur um lágmarks losun skaðlegra efna. Þannig að ef vorið er farið að kalla á breytingar heima fyrir er þetta kannski akkúrat rétti tíminn til að leyfa nýjum lit að færa heimilinu ferskan blæ.“
Hús og heimili Mest lesið Mugison þakkar innilega fyrir sig Tónlist Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Lífið Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Lífið „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Lífið Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: Verðbólga, eldflaug og Dior Lífið Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Bíó og sjónvarp Kúluhúsið falt fyrir níutíu milljónir Lífið Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Fleiri fréttir Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Fulleldað sous vide lambakjöt er spennandi nýjung frá Kjarnafæði Sumir sofa eins og englar – gæti sængin verið leynivopnið? Næsta kynslóð sólarvarna fyrir andlit Einn stærsti rafbílaviðburður sumarsins Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Moroccanoil sér um glamúrinn á Eurovision Stuðningur sem skiptir raunverulega máli Betri svefngæði með bambus Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Þetta hefur gefið mér nýtt líf Húð- og feldumhirðuvörur sem draga úr ofnæmisvöldum frá hundum og köttum Hárlos hjá körlum: Hvað veldur og hvernig er hægt að grípa inn í? Nýr rafbíll BMW afhjúpaður í Hörpu Tannhjálp sinnir nauðsynlegri neyðarþjónustu tannlækna Nú er rétti tíminn til að huga að útisvæðinu „Sumarið byrjar hjá okkur“ Eva Laufey segir Hagkaup tilbúið í björtustu dagana Gerðu pallinn og svalirnar að uppáhaldsstað sumarsins! Hvernig tannlæknar leysa algeng útlitsvandamál Kaldir pottar eru orðnir hluti af daglegri rútínu margra landsmanna Sjá meira
Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Lífið
Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Lífið