Ný könnun: Hástökk Viðreisnar í Hafnarfirði Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. mars 2026 15:50 Karólína Helga Símonardóttir er oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði en hún hefur verið varaþingmaður Viðreisnar í Kraganum. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í Hafnarfirði er kolfallinn ef marka má nýja könnun Maskínu fyrir DV. Samfylkingin mælist stærsti flokkurinn í Hafnarfirði en Viðreisn er í lykilstöðu.
Sjálfstæðisflokkurinn hlaut tæplega 31 prósents fylgi í kosningunum fyrir fjórum árum og fékk fjóra menn líkt og Samfylkingin sem fékk 29 prósenta fylgi. Framsókn náði inn tveimur mönnum með tæplega 14 prósenta fylgi og Viðreisn einum manni með 9,1 prósents fylgi. Samkvæmt nýju könnuninni fær Samfylkingin 24,5 prósenta fylgi í Hafnarfirði sem myndi duga fyrir þremur bæjarfulltrúum. Þannig myndi flokkurinn tapa einum fulltrúa. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 21,4 prósenta fylgi sem myndi skila þremur fulltrúum, einum færri en síðast. Eru þá komnir sex af ellefu bæjarfulltrúum en hvert rata hinir fimm? Viðreisn er hástökkvari könnunarinnar og tvöfaldar fylgi sitt frá síðustu kosningum. Flokkurinn mælist með 18,6 prósenta fylgi sem myndi skila þremur fulltrúum í bæjarstjórn. Ólíkt síðustu kosningum er Viðreisn því í lykilstöðu og gæti myndað meirihluta hvort sem er með Sjálfstæðisflokknum eða Samfylkingunni. Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin gætu líka myndað sex manna meirihluta en má telja samvinnu flokkanna í bænum líklega ólíklegustu svipmyndina ef horft er til mögulegs samstarfs tveggja af þeim þremur flokkum sem mælast með þrjá bæjarfulltrúa. Framsóknarflokkurinn, flokkur bæjarstjórans Valdimars Víðissonar, mælist með 10,9 prósenta fylgi sem myndi skila einum fulltrúa. Þá mælist Miðflokkurinn með 8,9 prósenta fylgi sem myndi skila flokknum bæjarfulltrúa í annað sinn í sögu flokksins í bæjarfélaginu. Siggi Stormur veðurfræðingur var kjörinn í bæjarstjórn fyrir hönd flokksins árið 2018. Í könnuninni mælast Vinstri græn með 3,6 prósent. Flokkurinn mun þó bjóða fram undir merkjum Vinstrisins líkt og í Reykjavík. Vinstri græn fengu 4,3 prósent í síðustu kosningum. Bæjarlistinn mælist með 3,5 prósenta fylgi samanborið við 4,3 prósent í síðustu kosningum. Könnunin var gerð 12. til 19. mars. 649 svarendur tóku afstöðu til flokks.
Viðreisn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Framsóknarflokkurinn Miðflokkurinn Skoðanakannanir Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira