Sport

„Ef þú færð að vinna einn Ís­lands­meistara­titil þá verður þú að falla líka“

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Óvissa ríkir um hvort Lárus haldi áfram með Þórsara.
Óvissa ríkir um hvort Lárus haldi áfram með Þórsara. Jón Gautur Hannesson

Þór Þorlákshöfn féll úr úrvaldsdeild karla í körfubolta í kvöld eftir tap gegn deildarmeisturum Grindavíkur. Lárus Jónsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar, var að vonum svekktur eftir leik en jafnframt stoltur af árangri félagsins síðustu ár.

„Ég vil byrja á að óska Grindavík til hamingju með deildarmeistaratitilinn. Þeir sóttu meira og þetta var eitthvernveginn bara leikurinn þeirra fannst mér,“ sagði Lárus eftir tap gegn deildarmeisturunum.

„Þegar við vorum að hóta endurkomu þá fannst mér Pargo setja niður mjög erfið skot og þeir slökktu alltaf einhvern neista þegar við náðum þessi niður í 10 stig. Unnsteinn var líka á eldi hjá þeim, við reyndum okkar besta en þeir höfðu töluverða yfirburði.“

Lárus gerði upp tímabilið í stuttu máli og taldi það vera tímabil vonbrigða.

„Þetta tímabil er búið að vera fyrir okkur tímabil vonbrigða. Það voru einhverjir leikir hingað og þangað sem maður getur talað um sem við hefðum getað unnið en töpum framlengingu.“

Óvíst er hvort Lárus muni stýra liðinu áfram en samningur hans við félagið rennur út eftir tímabilið.

„Ef einhver hefði sagt við mig fyrir svona sex árum síðan að ef þú færð að vinna einn Íslandsmeistaratitil þá verður þú að falla líka, ég hugsa að ég hefði tekið því.“

„Með því að hafa unnið titilinn finnst mér við hafa sett ákveðinn standard hjá Þór. Þó að við höfum fallið núna þá er það eitthvað sem fólk býst við að við getum gert aftur, unnið titilinn. Ég er ekki í nokkrum vafa um að það verði ekkert langt í það að Þór Þorlákshöfn fari aftur að berjast um það stóra.“

„Við þökkum kærlega fyrir okkur og við viljum sérstaklega þakka stuðningsmönnunum sem hafa stutt við bakið á okkur þrátt fyrir erfitt tímabil.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×