Hvaða átta milljarðar, Þorgerður? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 26. mars 2026 07:01 Meðal þess sem fram kom í máli Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í gær var að nettókostnaður Íslands til Evrópusambandsins kæmi til inngöngu í það yrði líklega 10-15 milljarðar króna á ári. Á móti sagði hún að árlegur átta milljarða króna greiðsla Íslands vegna EES-samningsins félli niður. Hins vegar er vandséð hvaða greiðslu vegna samningsins ráðherrann var að vísa til með þeim orðum sínum. Væntanlega átti Þorgerður þar við greiðslu Íslands í svonefndan Uppbyggingarsjóð EES. Miðað við gildandi samkomulag við Evrópusambandið í þeim efnum er gert ráð fyrir því að greiðslur landsins verði samanlagt 12 milljarðar á tímabilinu 2022-2028 samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu eða að meðaltali um 1,7 milljarðar á ári. Það er talsverður munur á þeirri tölu og þeim átta milljörðum króna sem Þorgerður fullyrti að við værum að greiða árlega vegna EES-samningsins! Væntanlega átti hún annars við beina greiðslu Íslands til Evrópusambandsins ef til inngöngu í það kæmi en hún næmi rúmlega 1% af þjóðartekjum landsins. Miðað við þjóðartekjurnar á síðasta ári má gera ráð fyrir að greiðslan næmi um 38 milljörðum króna árlega. Rúmur helmingur þess fjár fengist líklega til baka í formi styrkja og annars slíks. Þeir fjármunir myndu þó ekki skila sér aftur beint til skattgreiðenda en greiðslurnar til sambandsins kæmu á hinn bóginn úr vösum þeirra. Flest ríki Evrópusambandsins greiða hins vegar minna til þess en þau fá frá því eða 17 af 27. Við yrðum eitt af ríkjunum sem borguðum reikninginn. Meira en 30 ár eru liðin frá því að ríki gengu í sambandið sem greiða meira til þess en þau fá til baka. Þegar Finnland, Svíþjóð og Austurríki gengu í það árið 1994. Þá eru tíu ríki í Austur-Evrópu annað hvort umsóknarríki eða möguleg umsóknarríki að Evrópusambandinu. Meðal samþykktra umsóknarríkja eru Moldóva og Úkraína. Hitt er svo annað mál að hlutfallið af þjóðartekjum ríkja Evrópusambandsins er ekki eina tekjulind þess. Þannig fær sambandið einnig hlutdeild í virðisaukaskatti ríkjanna og allar tollgreiðslur vegna innflutnings á vörum frá ríkjum utan þess. Með öðrum orðum einnig fjármuni úr vösum skattgreiðenda. Fjöldi vara, sem bera toll innan Evrópusambandsins, er án tolla hér á landi. Fyrir vikið er ljóst að margar innfluttar vörur frá ríkjum utan sambandsins myndu hækka í verði hér á landi. Fram kom einnig hjá Þorgerði „að hvert prósentustig í lægri vöxtum gæti skilað heimilunum um 32 milljörðum króna í lægri vaxtakostnað. Því gæti ávinningur af lægri vöxtum, ef til upptöku evru kæmi, að hennar mati vegið þyngra en aðildargjöldin.“ Gæti? Á sama tíma hefur verið mikill skortur á hagvexti á evrusvæðinu en hvert prósentustig í minni hagvexti kostar þjóðarbúið tugi milljarða króna árlega. Þá erum við ekki farin að ræða kostnaðinn vegna stóraukins atvinnuleysis. Við erum heldur ekki farin að ræða stóraukið umfang hins opinbera hér á landi kæmi til inngöngu í Evrópusambandið sem hrinda yrði í framkvæmd í umsóknarferlinu samkvæmt gögnum sambandsins. Þar kemur einnig fram að stjórnsýsla Íslands sé allt of lítil til þess að ráða við þær skuldbidningar sem fylgi veru innan Evrópusambandsins. Þá eigum við alveg eftir að ræða þau ómetanlegu verðmæti sem felast í valdinu yfir flestum okkar málum sem færi til sambandsins. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Hjörtur J. Guðmundsson Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé Skoðun Umsóknarferlið útskýrt fyrir kjána Elísabet Kjárr Skoðun Skoðun Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Skoðun Umsóknarferlið útskýrt fyrir kjána Elísabet Kjárr skrifar Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé skrifar Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar