Auka viðbúnað í Grindavík vegna veðurs Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 25. mars 2026 16:13 Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, í samráði með Almannavörnum, varar við vondu veðri á morgun. Appelsínugular veðurviðvaranir verða í gildi fyrripart dags. Viðbúnaður verður aukinn sérstaklega í Grindavík.
Í fréttatilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum segir að gert sér ráð fyrir hríðarveðri, slæmu skyggni og snjókomu, einkum á Reykjanesi. Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun sem tekur gildi klukkan fimm í nótt og svo tekur appelsínugul veðurviðvörun við klukkan sjö í fyrramálið. Hún verður í gildi til klukkan 13 á suðvesturhorninu. Foreldrar eru hvattir til að fylgja börnum sínum í skóla og leikskóla. Þá skal fólk ekki fara af stað á vanbúnum bílum. Tryggja þarf að ökutæki séu vel útbúin vetrarhjólbörðum, nægu eldsneyti og tilbún í vetrarfærð á vegum á svæðinu. Þá er fólk hvatt til að hafa meðferðis í bílnum hlý föt, mat og drykk ef tafir verða. Áframhaldandi óvissa sé með landris og jarðhræringar á svæðinu í kringum Grindavík og Svartsengi. Í morgun ákváðu viðbragðsaðilar að funda til að meta aðstæður í Grindavík sökum veðurs. Vakt slökkviliðs verður til staðar ásamt björgunarsveit og þá verður aðgerðastjórn lögreglu virkjuð í fyrramálið. „Þar sem enn ríkir óvissa með jarðhræringar og landris mælist enn undir Svartsengi með mögulegri eldgosshættu, er almenningi, ferðamönnum og íbúum svæðisins ráðlagt að kynna sér vel aðstæður og að það gæti komið til þess að flóttaleiðir frá bænum lokist með stuttum fyrirvara,“ segir í tilkynningunni. „Fyrirtækjaeigendur í Grindavík eru einnig beðnir um að hafa í huga að fresta komu starfsfólks þangað til að veður gengur niður og færð sé í lagi.“
Umferð Veður Grindavík Færð á vegum Óveður 26. mars 2026 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Katla skelfur Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira